Heimilisblaðið - 01.09.1963, Side 21
Það er ekki auðvelt að þekkja
manninn á myndinni, en það
er hertoginn af Edinborg.
Ástæðan til þess, að hann er
svona vel „innpakkaður" er
sú, að hann er að skoða rann-
sóknastöð, sem framleiðir
vefjagróður.
Á frönsku Miðjarðarhafs-
ströndinni hefur verið kjörin
„jarðarberjadrottning" ársins.
Sú, sem hlaut titilinn, var
útvarpsþulurinn Denise Fabre.
>
Það hefur sýnt sig að starar
og þrestir geta neytt 700 kilóa
vínberja í hinum frægu vín-
görðum Vínarborgar, Grinzing,
Sievering og Döbling. Til þess
að koma í veg fyrir þetta
mikla tjón hafa vínyrkju-
mennirnir komið fyrir „háv-
aða-senditækjum“, sem með
reglulegu millibili gefa frá sér
hljóð afar óþægileg fyrir eyru
fuglanna.
Dorian Gray er ítölsk, en
leikur nú í þýzkum kvikmynd-
um. Ungfrúin er dökkhærð,
en þar sem hún dvelur nú á
norðlægari slóðum, er hún
auðvitað ljóshærð. Bangsann,
sem hún er með í fanginu,
skemmtir hún sér við, þegar
hún hefur ekki karlmann að
leika sér við.
<
„ Jónsmessunæturdraumur"
Shakespeares er leikinn reglu-
lega í Englandi á útisviði. Það
er vel fallið til þess. Þessi
mynd er af atriði úr þessu
fræga verki við venjulegar
sýningar á því í Regents Park
í London.
Svipur New York-borgar hef-
ur breytzt við það, að Pan
American hefur reist 59 hæða
byggingu sína, verðugur ná-
granni hinnar frægu Chrysler-
byggingar. Þessi átthliða P.
A.A.-bygging er 250 m há og
hefur kostað um þrjá millj-
arða króna.
>
^EIMILISBLAÐIÐ
197'