Heimilisblaðið - 01.09.1963, Qupperneq 23
<
í nýjustu hrollvekjukvikmynd
Alfreds Hitchcocks kynnast
áhorfendur nýrri leikkonu.
Hún var ljósmyndafyrirsæta,
þegar Hitchcock „uppgötvaði"
hana. Hún heitir Tippi Hed-
reu, og er myndin tekin við
komu hennar til London, þegar
myndin var frumsýnd.
>
Bandarískar ferðaskrifstofur
halda fegurðarsamkeppni með
stúlkum, sem vinna hjá þeim.
Nú í ár var kjörin tuttugu
ára stúlka, Susan Skamp, sem
áður hafði unnið titilinn „Miss
Indiana". Hún starfar hjá
stórri ferðaskrifstofu í Illinois.
Hún hefur verið á ferð um
Evrópu og sést hér í Tívoli í
Kaupmannahöfn.
<
í kvikmynd, sem verið er að
taka um þessar mundir, leikur
Gregory Peck eitt aðalhlut-
verkið. Nokkur atriði myndar-
innar eru tekin í Pyreneaf jöll-
um, og í því tilefni er Gregory
Peck með baska-húfu. Hér er
hann að skoða í speglinum,
hvort hún sitji rétt.
Enska stúlkan, Susan Pratt,
tók þátt í keppninni um Miss
Universe-titilinn í Miami
Beack í Florida. Hér er hún að
ganga um götur borgarinnar í
búningi frá Tower í London.
Skömmu seinna fór hún á bað-
ströndina, en varaði sig ekki á
sólargeislunum og var flutt á
sjúkrahús vegna sólbruna.
>
<
Þessi stúlka er að kenna börn-
unum reikning og notar til
þess svörtu doppurnar, sem
málaðar eru á vegginn.
Á eynni Formósu, þar sem
Chiang-Kai-shek ríkir í skjóli
hers þjóðernissinna, lifir hinn
dásamlegi Formósu-hjörtur.
íbúarnir hafa mikið dálæti á
honum. Á myndinni er verið
að gefa kiðling pelann sinn.
>
•• •': :•'••;
HEIMILISBLAÐIÐ
199