Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Side 35

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Side 35
ffleð hann á meðan húsbóndinn var burtu. Sá síðarnefndi skildi meiningu fílsins, og gæzlumaðurinn varð að lokum að viður- kenna atferli sitt. Apar eru, eins og menn vita, einhver skringilegustu dýr sem fyrirfinnast á jarð- kringlunni, og varla er annað hægt en hafa gaman af tilburðum þeirra og uppá- tækjum. Skipstjóri einn hefur eftirfarandi sögu að segja: „Meðal annarra húsdýra átti ég apa, en einnig lítinn og svartan loð- hund, og hafði ég þá báða um borð í skipi ttúnu. Þeir voru báðir hændir að mönn- llm, og ég get ekki sagt um, hvor þeirra var flýrulegri. Apinn varð jafnan mjög afbrýðisamur í hvert sinn sem hundurinn varð fyrri til að heilsa mér á morgnana með vingjarnlegu flaðri sínu; annars voru beir heimsins beztu vinir og voru svo að Segja daglangt í einhverjum leikjum. — En apanum hætti til að komast í smá- hlípur. Annaðhvort rak hann fingurinn °fan í blekbyttuna eða brenndi sig á grautnum í eldhúsinu. Hann þurfti alltaf að vera með nefið niðri í öllu og hætti þá til að skemma það, sem hann fékk hönd á fest. Stundum kom hann svo nálægt búr- Jnu þar sem tígrisdýrið var geymt, að htlu munaði, að hann yrði étinn til agna. Hann hafði einnig lag á að stríða páfa- gauknum — og fékk það ríkulega launað ^neð óbótaskömmum hjá þeim síðarnefnda; Seitarkiðið átti sömuleiðis um sárt að binda vegna apans. Að lokum fann ég ekki annað ráð en taka hann og binda hann, enda þótt það væri báðum okkur til stórrar raunar. Hann fékk langa ól utan um sig miðjan, og var annar endi hennar testur í bjálka, vænan spöl fyrir ofan þil- farið. — Frá þessum samastað sínum fylgdist hann nú með öllu, sem fram fór. Hausinn á honum var á sífelldu iði, því ekkert fór framhjá honum, og þegar e£ var einhvers staðar nærri, kom hann °g stökk upp um mig og tók að gæla við |uig 0g góla í eyrað á mér. En það angraði hann meira en lítið, að hundurinn skyldi a að leika lausum hala. Þegar seppi settist alengdar og gelti að apanum, vissi sá •íoðraði ekki, hvernig hann gæti launað yvir sig eins og vert væri, en henti 1 hann hElMlLISBLAÐIÐ hverju því lauslegu, sem hann gat hönd á fest. En þar með er sagan ekki sögð. Þeg- ar hundurinn lagði leið sína framhjá hon- um annars hugar, kastaði apinn sér yfir hann fyrirvaralaust og gólaði allt hvað hann gat í eyrun á honum. En óðara er seppi hafði hrist hann af sér, hvarf hann aftur á sinn fyrri stað, og ekki er hægt að neita því, að meinfýsinn var hann á svipinn og sjálfsánægður lengi á eftir. — En seppi var aftur á móti ekki eins vit- laus og margir kynnu að halda. Hann komst að vísu ekki upp þangað, sem ap- inn hafði sinn samastað, en hugsazt gat, að hann gæti tælt apann niður á þilfarið — enda tókst honum það. — Eitt sinn, þegar apinn í ímynduðu öryggi sínu skemmti sér yfir aumlegu útliti seppa, tók hinn síðarnefndi ól apans í kjaftinn og togaði í hana, svo að apinn féll niður á þilfar. Síðan hljóp hann á hann og velti honum um koll hvað eftir annað, í góðu þó. En samt var apinn ekki ánægður með að láta þetta ólaunað, enda síður en svo hættur að vilja sýna af sér prakkarastrik. Þess vegna var það, að er hann hafði eitt sinn sem oftar kastað sér niður á hund- inn og fengið sér sinn venjulega útreiðar- túr með miklu spangóli í eyrun á seppa, þá stökk hann sem snarast aftur upp á pall sinn — og greip ólina sína með sér í stökkinu og settist á hana, þannig að ekkert var lengur handa hundinum til að toga í. Ef apinn hafði fundið fyrir hreykni áður, þá gerði hann það svo sannarlega núna. Hann var að vísu ekki með öllu áhyggjulaus í fyrstu, á meðan hann var ekki viss um, hvort þetta bar fullan árang- ur. En þegar hann sá hundinn gera ítrek- aðar og árangurslausar tilraunir til að hoppa upp þangað sem hann sat — þá brosti hann út undir eyru, gólaði og bað- aði út öllum skönkum, til þess að seppi gæti sannfærzt um, að nú hafði hann þó verið sigraður svo um munaði.“ Maður nokkur lagði upp í ferðalag ásamt apa og geit, og að nesti hafði hann hrís og þykka mjólk. Er hann kom að fljóti nokkru, ákvað hann að taka sér bað og matast á eftir. Á meðan hann var í baðinu, át apinn matinn hans, og er hann 211

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.