Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Page 41

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Page 41
Bína gamla frœnka er veik og Kalli og Palli hafa skrifað henni bréf til að hughreysta hana, en hver á að faera henni bréfið? Frú Kengúra gæti geymt það 1 pokanum sínum og sú væri nú ekki lengi að stökkva ■heð það. En Kalli var bara hræddur um að unginn liennar mundi éta bréfið. Svo er það náttúrlega strút- úrinn, en Kalli var ekki viss um nema hann týndi tréfinu ef hann yrði hræddur við eitthvað og stingi höfðinu í sandinn. „En gasellan?" stingur Palli upp á. Jú, hún er vissulega fljót í ferðum, en ég veit ekki nema að hún æti það ef hún yrði svöng,“ segir Kalli. En svo fór, að Kalli spurði bréfdúfuna, hvort hún vildi fara með bréfið og hún játaði því. Og hún var ekki lengi að koma því til skila. „Gjörðu svo vel, Bína frænka, hér er kveðja frá Kalla og Palla.“ "Eg skal annast stórþvottmn," segir Palli dag nokk- l)rh, Kalla til mikillar undrunar. Hann á ekki því að Vehjast, að Palli sýni slíkan áhuga, sízt af öllu þeg- ai hm jafn leiðinlega vinnu er að ræða og þvott. Hin yrin eru líka áhugasöm um vinnu Palla og hjálpa .'*> svo að hann verði búinn fyrr. „Þökk fyrir hjálp- Ra.“ segir Palli, þegar búið er að hengja upp þvott- inn til þerris. „Nú skulum við blása sápukúlur, þvi ég keypti nokkrar krítarpípur og hef geymt balann með sápuvatninu." Og öll fara dýrin að blása sápukúlur, en duglegastur er fíllinn og hann þarf enga krítarpípu. „Húrra, Júmbó, þú ert sápukúlu-kóngurinn okkar!“ hrópa öll dýrin í hrifníngu.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.