Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 17

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 17
skrokkinn á þessuni svívirðilega afbrota,- manni? Jú. Og þama úti voru hundruð manna gagnteknir af þessu sama hatri •— og það beindist að honum. Hann gat ekki einu sinni reitt sig á, að sheriffinn gæti verndað hann og með valdi sínu frels- að hann frá að verða hengdur án dóms og laga. Hann leit upp. Það var orðið dimmt í herberginu. Sólin var horfin, litla vin- gjarnlega sólskinsrákin var á bak og burt. Aldrei framar mundi hann sjá vingjarn- legt andlit í kringum sig. öllu var nú lok- ið. Hann átti nú aðeins eftir stutta stund, þar sem myrkur og hatur mundi ráða ríkj- um — og því næst hinn nístandi kuldi og myrkur. Iiann fann til andþrengsla í hálsinum. Eitt andartak fann hann til freistingar til að ganga að hurðinni, biðja þá um að opna, falla á kné og rétta upp hendurnar og grátbæna þá um að skjóta sig ekki fyrr en hann hefði skýrt þeim frá að hann væri heiðarlegur maður af góðri fjölskyldu og að faðir hans byggi þarna og þama . . . En nei, nei! Þeir mundu hlæja að hon- um. Þeir mundu svara hverju einu orði hans með tylft af kúlum. Hugsunin um, að hann á næsta augna- bliki þyti til dyranna, berði á hurðina með báðum hnefum og hrópaði hátt eins og móðursjúk kona, kom aftur vitinu fyrir Tom Converse, og kaldur svitinn spratt fram á enni hans. „Er ég hugleysingi ?“ spurði hann sjálf- au sig. ;,Er það ekki ragmennska að sitja hérna og titra eins og krakki, sem er myrk- fælinn?“ Óttinn við það, að hann yrði sjálfum sér til minnkunar, var meiri en óttinn við dauðann. Hann þvingaði sig til að standa upp af stólnum og ganga nokkur skref fram og aftur. Hreyfingin hafði mildandi úhrif á þann ískulda, sem óttinn hafði or- sakað hjá honum. Hann fann ekki lengur til óeðlilegs hjartsláttar né andþrengsl- anna í hálsinum. Sjón hans varð skarp- ari, hendur hans urðu aftur rólegar. Hugsunin um það, hvernig hann hefði komizt í þessar hræðilegu kringum- stæður; minnti hann aftur á manninn með gula andlitið. Hve kænlega hafði hann ekki hegðað sér! Hve djöfullega hafði hann lagt á ráðin! Já, það var Skugginn sjálf- ur! Tom Converse hafði aldrei fyrr heyrt nokkra lýssingu á hesti Skuggans. Hann hafði átt heima svo langt frá þeim slóð- um, þar sem glæpamaðurinn hélt til, og Skugginn hafði á sinn undirferlislega hátt aflað sér upplýsinga um fákunnátttu hans að þessu leyti og síðan notað sér hana mis- kunnarlaust. Þessi mannskepna horfði nú á það með köldu blóði, að saklaus maður varð að gjalda með lífi sínu fyrir þau glæpaverk, sem hann sjálfur hafði framið. Og jafn- vel þótt hann hefði lagt hestinn í hættu, þá fékk hann hann nú aftur. Reiðin hleypti á ný ólgu í blóð Tom Converse, hann dró andann þungt og kreppti hnefana, þegar honum varð hugsað til Skuggans. XII. Flóttinn. Reiðin hafði veitt Tom Converse hug- rekkið aftur og drjúgan skerf í viðbót. Hann gekk út að glugganum og gægðist eins varlega og byggist hann við, að um- sátursmennirnir mundu sjá hann í myrkr- inu og gera hann að skotspæni sínum. En hann varð ekki var við hið minnsta merki um líf fyrir utan — að undanteknum vind- inum, sem vaxið hafði með skyndilegum ofsa og slöngvaði heilum brotsjóum af regni á veggi gamla gistihússins. Ofsi stormsins og regnsins sló kvistum grein- ar einnar í rúðuna. Tom Converse hafði nokkrum sinnum veitt þessu hljóði eftir- tekt, en nú fyrst sá hann, hvað orsakaði það. HEIMILISBLAÐIÐ 53

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.