Heimilisblaðið - 01.03.1977, Blaðsíða 29
Við. sem vinnum eldhússtörfin
Það eru alltaf vissir dagar hjá öllum
fjölskyldum, sem mann langar til að halda
sérstaklega upp á og þá kemur oft spurn-
ingin: hvað á ég að gefa fólkinu að borða.
Það verður að vera gott, en samt ekki mjög
flókið í framkvæmd, því það er ekki
skemmtilegt þegar húsmóðirin er á kafi
i matarstússi fram á síðustu stundu.
Rækjur í hvítvínshlaupi.
500—600 gr. hreinsaðar raekjur
1 flaska þurrt hvítvín
1 blokk fiskisoð
1 dl vatn
10 blöð matarlím.
Sósa: 1 bikar (ca 200 gr) creme fraiche
sama magn yogurt eða ymer
3—4 msk. þurr vermouth
1—2 feitir knúsaðir hvítlaukar
Ofurlítill sítrónusafi og sykur eftir
smekk, e. t. v. ofurlítið af saxaðri
steinselju og sítrónusnittur.
Ef frosnar rækjur eru notaðar er bezt að
þíða þær í hvítvíninu. Þegar þær eru mátu-
lega þiðnaðar og liggja lausar er hægt að
búa til röndina: Fiskteningarnir eru leyst-
lr upp í sjóheitu. vatni. Matarlímið er lagt
1 bleyti í köldu vatni í 10 mín, þá er það
undið upp úr vatninu og leyst upp í sjóð-
nndi fiskasoðinu. Hvítvínið frá rækjun-
urn blandast út í og svolítið af þessum
hlaupsafa er strax látið út í blautt hring-
í°rm, sem er látið á kaldan stað svo hann
verði fljótt stífur. Nú er hægt að blanda
nækjunum í afganginn af hlaupsafanum
°& öllu er strax hellt í formið. Það er aft-
Ur látið á kaldan stað og áður en hlaupinu
er hvolft úr. Þegar það er orðið alveg stíft
11111 setja formið augnablik í sjóðandi vatn.
Þá verður hlaupið sérstaklega áferðar-
fallegt og er auðvelt að hvolfa því úr.
Skreytt með sítrónusnittum. Þegar kalda
sosan er búin til er öllu bara hrært sam-
heimilisblaðið
an og er bragðbætt mjög vandlega. Hún
má gjarnan standa tilbúin í kæliskapnum
með loki yfir í 10—12 klst. ásamt rækju-
röndum. Fransbrauð eða rundstykki eru
borin fram með þessu.
Sinnepsglasera-ður Jiamborgarhryggur.
Ca. 2 kg hamborgarhryggiu:
sinnepsglasur af ca 4 smk dijonsinnepi
1 tsk maizenamél
2—3 msk. ljós púðursykur, e. t. v.
ofurlítiö af ediki.
Það sem borið er fram með þessum rétti:
8 tómatar, 2 harðsoðin egg, salt, pipar,
ofurlítið smjör og söxuð steinselja.
Brætt smjör.
Hamborgarhryggurinn er lagður í pott
með nægu sjóðandi vatni. Hamborgar-
hryggurinn er soðinn í 20 mín, síðan
stendur hann í 5 mín. í pottinum — eða
þangað til hann er alveg kaldur. Þá er
hann smurður vel með samanhrærðum
sinnepsglasur. Er látinn í ofninn við ca
225°, þangað til glasurinn er fallega Ijós-
brúnn.
Eggja-tómatana má setja í ofninn um
leið. Það er skorið lok af tómötunum og
tekið innan úr þeim og þeir fylltir með
saxaða eggjamassanum( sem ekki er al-
veg harðsoðinn), sem er aðeins saltaður
og pipraður. Ofurlítið smjör er látið efst.
Látið tómatana fyrir framan hamborgar-
hrygginn. Þeii' verða tilbúnir á undan —
þeir eiga að verða ljósbrúnir. Brætt smjör
og grænmeti eftir smekk og annaðhvort
kartöflur eða franskbrauð borið fram með.
JarSarb erj afrmnage.
Ca 500 gr frosin jarðarber (án sykurs)
4 eggjarauður,
1% dl sykur, 7—8 blöð matarlím,
% 1 rjómi, 2 þeyttar eggjahvitur,
e. t. v. þeyttur rjómi og jarðarber
65