Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 20

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 20
yggistilfinningu, þaf sem hann hélt sig núna. Fljótt og liðugt og svo hljóðlaust, að ekki hið minnsta skrjáf gat truflað mann- inn, sem sneri baki að hlöðudyrunum, klifraði Tom sperru af sperru, þangað til hann var beint fyrir ofan Captain, í á að gizka fimm feta fjarlægð frá baki hests- ins góða. Þar nam hann staðar og lá endi- langur á bjálkanum, en í sömu svifum lyfti Captain höfðinu og annar hestur innar í hlöðunni frýsaði. Skugginn sneri sér við í skyndi í hlöðu- dyrunum. Tom hélt niðri í sér andanum af hræðslu. Mundi hinn blaktandi bjarmi í hlöðunni bjarga honum? Það leit einna helzt út fyrir það. Skugginn stóð kyrr í dyrunum og rýndi í myrkrið uppi undir þakinu og bjóst auðsjáanlega við að koma auga á mann, sem stæði uppréttur og væri á hreyf- ingu; en ekki á mann, sem lægi á bjálka í þeirri stefnu, sem hann horfði í. Hann hafði ekki komið auga á Tom Converse. Skammbyssunni, sem hann hélt á í hendinni, lyfti hann hvorki né hleypti af henni. Hann gat ekki séð Tom, en það leit út fyrir, að hann gizkaði allt í einu á, hvar hann væri. „Halló!“ kallaði hann. ^Komið hingað! Það getur verið, að hann hafi stokkið af greininni og slopið inn um hlöðudyrnar.“ Tíu menn komu þjótandi inn um dyrnar. Skugginn sneri sér við til að vísa þeim leið. En um leið og hann sneri bakinu að Tom renndi hann hér niður úr fylgsni sínu. Brot úr sekúndu hékk hann á hönd- unum í bjálkanum og lét sig síðan falla í hnakkinn á baki dökka hestsins. Þeir sáu hann í sömu svifum og hann datt, en áður en hróp gæti aðvarað Skugg- ann um, hvað gerzt hafði að baki honum, hafði Tom Converse keyrt hestinn sporum. Skugginn sneri sér við í einni svipan — en aðeins til að sjá Captain bregða fyrir um leið og hann þaut út um dymar á hús- inu með flóttamanninn liggjandi álútan á hálsi sér. XIII. Hefnd —/ Á meðan allir umsátursmennirnir hlupu til hesta sinna með hrópum og blótsyrðum og riðu af stað í dauðans ofboði, stóð Skugginn kyrr, án þess að hreyfa legg né lið. Honum leið ekki vel við þá tilhugs- un að hann skyldi hafa tapað Captain aftur, eins og hann hafði verið sigrihrós- andi yfir að vera búinn að ná honum. Hann vissi, að það var bjánaskapur að ætla sér að ná í þann mann, sem sæti á baki hans. Hversu oft hafði hann ekki sjálf- ur, á bakinu á Captain, hlegið dátt að þeim mönnum, sem þá voru að elta hann á þeim fljótustu hestum, sem voru til á margra mílna svæði. Fimm mínútum eftir að flóttamaðurinn var horfinn, var varla nokkur maður eftir í bænum. Skugginn gekk ráðþrota frá hlöðunni og yfir að hinu auða og yfirgefna veitingahúsi. Það væri nógu gaman að sjá herbergið, þar sem hinn ungi maður hafði sofið um daginn. Hann gekk upp stigann og hugsaði um; hvernig maður þessi, Tom Converse, væri, og hvað hann væri í raun og veru. Hann hafði náð Tom í gildru, sem hafði ótvírætt bent til, að hann týndi lífinu, enda var Skugganum sama. Líf hans hafði enga þýðingu. En núna hafði það sýnt sig, að Tom Converse var ekki jafn huglaus og hann hafði haldið. Flótt- inn af veitingahúsinu var verk, sem Skugg- inn sjálfur hefði ekki getað leikið betur. Hann fékk það óþægilega mikið á til- finninguna, að hans eigin örlög væru á einn eða annan hátt fléttuð saman við ör- lög Tom Converse. Þegar hann gekk inn í herbergið, þar sem hinn ungi maður hafði verið lokaður inni; sá hann sér til mikillar undrunar, að Ijós logaði þar inni. Hann stóð augliti til auglitis við Algernon Thomas sheriffa. 56 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.