Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 26

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Side 26
„Það fær enginn leyfi til að skjóta hann,“ hrópaði hann. „Við viljum skjóta hann,“ hrópuðu nokkrir hermannanna, sem trylltastir voru. „Þá verðið þið fyrst að skjóta mig,“ sagði Abe og rétti úr sér. Ákveðin framkoma hans og óbilandi kjarkur héldu hinum ólmu körlum í skefj- um. Nokkrir þeirra héldu þó áfram að hrópa og krefjast hefndar og einn af þeim þráleitustu sagði: „Þú ert huglaus, Lineoln." En þessi ósvífna og ósanngjarna ásök- un herti aðeins Abe í ásetningi sínum. Hann hrópaði: „Ef einhver ykkur heldur að ég sé rag- menni, þá komi hann hingað strax og sanni það.“ „Þú ert hærri og sterkari en nokkur okkar,“ svaraði þá einhver. „Því getið þið varist, veljið ykkur sjálfir vopn,“ sagði Abe. 1 hverjum andlitsdrætti hans var skráð óbifandi viljafesta. „Aldrei áður höfðum við séð hann jafn tignarlegan og einbeittan,“ sagði einn her- mannanna síðar. En enginn þeirra þorði að segja hann huglausan og því síður að taka áskorun hans. Abe stóð aldrei í þessu stríði aug- liti til auglitis við fjandmennina. En hann komst að raun um, að Indíánarnir voru líka menn, sem á margan hátt voru eins góðir og hvítu mennirnir. Hann sagði oft frá því í spaugi, að sér hefði blætt í þessu stríði, en það var mýfluga, sem olli þeim blæðingi. „Þið megið ekki skrökva um mig og gera mig að einhverri stríðshetju,“ sagði hann. Póstmeistari, landmælingamaður og ríkisþingsmaður. Þegar Abe sneri aftur heim til New Salem var budda hans tóm. Og hann vildi 62 gjarna borga upp skuld sína. Hann þurfti því að innvinna sér eitthvað, en hvað gat hann tekið sér fyrir hendur? Einn vina hans sagði: „Abe á ekki nokkurn skapaðan hlut nema marga vini. Vinnu þarf hann þó líka að hafa.“ Hann hafði komizt í kunningsskap við landmælingamann, sem réði yfir nægri vinnu. „Lærðu landmælingar og vertu síðan aðstoðarmaður minn,“ sagði hann við Abe. Abraham maldaði í móinn. Hann var vantrúaður á, að hann hefði hæfileika til þess. En hann gladdist þó yfir þessu boði. „Hafðu engar áhyggjur af því,“ sagði landmælingamaðurinn. „Hingað streyma innflytjendur. Það þarf að mæla og út- hluta ríkisjörðunum. Það er enginn hægð- arleikur að vera landmælingamaður. En svona háfættur, seigur og hraustur ná- ungi er vel fallinn til slíkrar vinnu. Þú munt fá að svitna, þegar þú kemur út á víðavang.“ Það sýndi sig seinna, að það var land- mælingamaðurinn sem svitnaði. Hann gat ekki haft við Abe, sem stikaði stórum. Áður en sex vikur voru liðnar hafði Abe lært allt sem að vinnunni laut. Hann stökk um víðlendið með festi sína, sagði sögur og var sí og æ kátur og ræðinn. Við slíkan landmælingamann líkaði fólki vel við. Hann vann sér inn talsverða peninga, en eins og ætíð var hann ávallt reiðu- búinn til að gera öðrum gott. Ef upp komu deilur milli manna eða hópa, kom Abe ævinlega til þeirra og sagði: „Komið, við skulum reyna að fá endi bundinn á þessa þrætu!“ Og í flest- um tilfellum heppnaðist honum að koma á sættum. Kona nokkur ritaði síðar um hann: „Við bjuggum sex km utan við bæinn. Á mælingarferðum sínum kom Abe oft við á heimili okkar. Við gáfum honum oft mjólk að drekka og maísbrauð með. Á meðan ég tók matinn til gaf hann börn- HEIMILISBLAÐIÐ j

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.