Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1977, Qupperneq 27

Heimilisblaðið - 01.03.1977, Qupperneq 27
unum brjóstsykur og- vaggaði yngsta barn- inu. Hann var reiðubúinn að gæta smá- bama og gera yfirleitt hvað sem vera vildi öðrum til gagns.“ Einn kaldan vetrardag sá Abe verka- mann, sem stóð og hjó niður gamalt tré. Maðurinn var berfættur og skalf af kulda. „Hvað færðu mikið fyrir þessu vinnu ?“ spurði Abe. „Einn dollar! Ég er að vinna mér inn fyrir skóm,“ sagði hann og benti á bera fætur sína. „Ágætt, lánaðu mér exina, en farðu inn °g vermdu þig,“ sagði Abe. Og Abe hjó svo að viðarbútamir flugu umhverfis hann. Verkamaðurinn sat inni og vermdi sig, en á ótrúlega skömmum tíma vann Abe fyrir dollarnum, svo að maðurinn gat keypt skóna. Árið 1833 var Abraham Lincoln skip- aður póstmeistari í New Salem. Launin voru ekki há og ýmsir aðrir myndu hafa látið sér starfið í léttu rúmi liggja. En Abraham var ekki þannig. Hann vanrækti aldrei það starf, sem honum var falið á hendur. Margir íbúanna voru hvorki læs- ir né skrifandi. Því tók Abe alla „póst- stofuna" í gamla hattinn sinn og gekk um á meðal móttakendanna og las fyrir þá bréfin. Og ef þeir báðu hann um að skrifa fyrir sig svar, gerði hann það líka. öll blöð, sem komu á póststofuna — það v°ui ekki mörg blöð í þá daga — las hann uPphátt fyrir stórum skara áheyrenda og útskýrði innihaldið fyrir þeim. Þegar hann, mörgum árum síðar, var orðinn forseti, hló hann hjartanlega, þeg- ar hann minntist þess, er hann í New Salem gekk um með „póststofuna í hatt- inum“. En íbúar bæjarins, sem nú var orðinn töluvert stór, voru sammála um, að „Abe heiðursmaður“ væri fæddur til æðri starfa heldur en að vera landmælingamaður og Postmeistari. Og því vildu þeir kjósa hann fulltrúa sinn í ríkisþingið. Hann var góð- heimilisblaðið ur ræðumaður og fróðari en nokkur þar um slóðir. Fyrsta tilraunin til að fá hann kosinn misheppnaðist. Hann „féll“. En vinir hans gáfust ekki upp og sjálfur hafði hann eignast trú á, að þessi leið lægi til frama. Hann var kosinn 1834. Hann var hreint ekki „fínn maður“ að sjá. Aldrei varð hann fríður né fagurvaxinn. En heiðar- leiki, trygglyndi og viljafesta lýsti sér ævinlega í fasi hans. Og vel klæddur var hann ekki þegar hann kom til kosningafundanna. Hann bar á höfði stráhatt og var í bláum baðmull- arfrakka með stuttu lafi og allt of stutt- um ermum. Hann var í léreftsbuxum, sem líka voru of litlar honum. En kjósend- urnir vissu þó, að í þessum fátæklegu klæðum gekk heilsteyptur maður. Kosningaræður hans voru stuttar og auðskildar. Hann sagði: „Kæru meðborgarar! Eg hygg, að þið vitið allir, hver ég er. Eg er blátt áfram Abraham Lincoln. Margir vina minna hafa hvatt mig til þess að bjóða mig fram.“ Því næst fór hann nokkrum orðum um, hverju hann vildi vinna að í ríkisþinginu og endaði með þessum orðum: „Ef ég næ kosningu verð ég þakklát- ur, en ég mun ekki kvarta þó ég nái ekki kosningu.“ Málaf ær slumaður. I ríkisþinginu hitti Abraham mann, Stuart að nafni, sem sagði við hann: „Þú ættir að nema lögfræði og gerast málafærslumaður.“ „Það hefur mér oft flogið í hug, en ég er fátækur og þarf að vinna til þess að borga skuld mína. Ég get ekki eytt mörg- um árum til lærdóms." „Þú þarft ekki að kosta til þess öðru en vinnu,“ sagði Stuart. „Þú getur unnið að landmælingu og lesið jafnframt.“ „Hvaðan fæ ég peninga til bókakaupa?“ „Ef þú heimsækir mig í Springfield, 63

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.