Í uppnámi - 01.06.1901, Side 6
36
honum veitt það embætti 6. febr. 1865. Þegar breyting var gjörð á
skipun læknahéraða með lögum 15. okt. 1875, hélt hann 6. læknis-
héraði Islands og hefur hann þjónað því embætti þar til honum var
veitt lausn í náð með eptirlaunum frá 1. des. 1900. 28. marz 1899
var liann sæmdur riddarakrossi Dannebrogsorðunnar.
Þokvaldue læknir hefur jafnan haft mikinn áhuga á og ánægju
af skáktafli, enda er hann talinn einn hinn bezti taflmaður á íslandi.
Hann mun og vera sá eini íslendingur af þeim, er á íslandi búa,
sem hefur fylgzt með erlendri skák og bóklega stundað skáktaflið.
Þess skal getið sem dæmi upp á það, hve Þorvaldiir hefur stundað
skák, að hann hefur fundið athugavert atriði í hinni alþekktu Bilguer’s
‘Handbuch,’ er í síðustu útgáfu þeirrar bókar stendur óleiðrétt; en
athugun Þorvaldar prentum vér á öðrum stað í þessu hepti. í
síðasta hepti voru birtir bréfkaflar frá honum um skáktafl á íslandi
og vísum vér til þeirra.
Magnús Magnússon Smith
skýrir þannig frá helztu æfiatriðum sínum: „Eg er fæddur 10. des.
1869 í Dal í Miklaholtshreppi í Snæfellsnessýslu.1 Faðir minn hét
1 Um fæðingarár og fæðingarstað hans er getið í síðasta hepti og
ber því ekki saman við það, sem hér Segir, en hvorttveggja þetta höfum
vér frá honum sjálfum; að líkindum er það, sem her stendur, réttara.