Í uppnámi - 01.06.1901, Blaðsíða 12

Í uppnámi - 01.06.1901, Blaðsíða 12
42 reiti, er fiytja skyldi kong og hrók yfir á. Fyrst eptir miðbik átjándu aldar varð hrókun eins í öllum heröðum Italíu og samkvæm því, sem tíðkaðist í öðrum löndum. A Ítalíu greindi menn og lengi fram eptir á um sum smáatriði í tafllögunum, meðal annars um það, hvort drepa mætti peð í framhjáhlaupi (en passant). í sumum heröðum Ítalíu var því haldið fram, að peð mætti í fyrsta skipti, er því væri leikið, hlaupa yfir reit (t. d. c2—c4), jafnvel þótt það lenti við hliðina á peði mótstöðumannsins, er stæði á næstu reitaröð hliðreitis (b4 eða d4). Þetta var kallað “að fara fram hjá fylkingu óvinanna” (passar battaglia). Nú voru aðrir, er andæptu þessu, og héldu því fram, að sá taflmaður, er ætti peð á b4 eða d4 mætti drepa peðið, er hlaupið hefði yfir á c4, alveg eins og það að eins hefði verið fært yfir c3, þ. e. að peð mætti eigi að ósekju hlaupa yfir reit, er annað peð gæti drepið það á (non passar battaglia), og er sú regla nú viðurkennd. Hitt atriðið, sem ítalir höfðu öðruvísi en aðrar þjóðir, var, að þeir leyfðu eigi, að peð, sem upp var komið, yrði að drottningu, ef drottningin í því liði enn var á borðinu, en leyfðu einungis að taka upp einhvern þeirra manna, er burtu voru úr taflinu. Þessi regla gilti og lengi hérna megin Alpanna, sem sé á Þýzkalandi. Þessi ágreiningur í ýmsum löndum um ýmisleg aukaatriði hvarf smámsaman fyrir byrjun 19. aldar, og skáktaflið eins og það nú tíðkast, með algildum lögum, hefur borizt aptur til Arabíu, Persíu og Indlands og alveg útrýmt gamla taflinu í hinu elzta heimkynni þess. Gátur. Þýddar úr ensku af SigfÚsi Blöndal. 1. Allt fram á kvöld berst sú frækna fjöld, hver er falla hlaut strax er borinn braut; voldugir prestar að vigum ganga og um róstuna hestar án reiðmanna spranga, en lofðungar lýðum stjórna í striðum. Sorg er að sjá, er svellur róma há, en samt má ei neinn sjá þar renna blóðdropa einn, þótt svelli senna. Hvaða riddarar hlaupa í einu hendiugsstökki yfir sína fjendur. halda svo til hægri’ eða vinstri hingað, þangað, hvert sem langar?

x

Í uppnámi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Í uppnámi
https://timarit.is/publication/436

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.