Í uppnámi - 01.06.1901, Side 37
67
—Innan skamms á að koma út ný útgáfa af hinni stóru “Handbuch des
Schaehspiels”, er Bilgueb byrjaði á og jafnan er við hann kennd en
vox der Lasa hefur gefið út allar eldri útgáfur af. Yfir höfuð er það
einhver bezta bók, sem gefin hefur verið út um þá list að tefla skák.
Hinn sögulega inngang á algjörlega að endurrita í hinni nýju útgáfu, og
gjörir það skákdæmahöfundurinn Johannes Kohtz.
—Sú byijun, sem nú á tímum mest tíðkast meðal taflmanna, er spánski
leikurinn eða Ruy-Lopez-leikur. Um þessa byrjun hefur spánskur
maður, Senor J. Capo González (í Barcelona), ritað nýlega bók, er heitir
“La Apertura Espanola ó Ruy Lopez.” Jafnframt því að bókin hefur
mörg hundruð afbrigða með athugasemdum. er einnig í henni stutt yfirlit
yfir skáksögu Spánar. Bókinni er hrósað. Það mun eigi mjög erfitt
að nota bókina, þótt menn kunni eigi spönsku. Einungis 1. bindið er
komið út.
—Hið ágæta skáktímarit, “Sachové listy", sem gefið er út af hinum ötúlu
bæheimsku taflmönnum, getur þannig tímarits vors í apríl-númerinu (bls. 64);
“I Uppnámi, Islenzkt Skákrit jest název sachového mésícníku vydávanóho v
Reykjaviku na Islandé p. Péturem Zophoníassonem. — Prinásí strucný
návod, jak císti sachovou notaci, úlohy i partie, sachové povídky a spzávy.
Témto naprosto nerozumíme, coz jest nám pri 19 nynéjsích sachsvých
listech novinkou. Originálních príspévkú v doslých nám dvou cislech jsme
nenasli. Za to úprava jest velmi úhledná. Cena 2 kor. (dánské). Prejeme
novému druhu z dálného severu mnoho zdaru.” Vér þökkum fyrir hinar
góðu óskir í enda greinarinnar.
— “Deutsche Schachzeitung”, hið elzta og bezta skáktímarit, birtir í
maí- og júní-heptunum grein eptir W. Fiske með yfirskriptinni “Das
heutige islándische Schachspiel”, sem að miklu leyti er tekin úr
“í Uppnámi.” Tímarit þetta hefur og minnzt á íslenzka skáktímaritið.
—Af ítölskum skáktímaritum er stærst og merkast “Rivista scacchistica
italiana”, sem kemur út í Róm og gefið er út af ítalska skáksambandinu
(Unione scacchistica italiana). I maí-heptinu er getið um “í Uppnámi”
og ennfremur er þar afurstutt grein um íslenzka skák. Þess má og geta,
að það tímarit hefur nú og tekið upp “algebraisku” skákritunina (eða
teiknaskákritunina), sem notuð er í þessu riti.
— “Checkmate” heitir nýtt skáktímarit, laglega útgefið og prentað í
Prescott, Ontario, Canada. I júní-heptu þess er nálega heil blaðsíða um
“I Uppnámi” og þar hlýlega um það talað; meðal annars er það sagt,
að “I Uppnámi” sé hvað prent og frágang snertir fremst af öllum skák-
tímaritum. Önnur tímarit en þau er hér hafa verið nefnd hafa og fagnað
hinu nýja íslenzka riti. I júlí-hepti hins kanadiska tíinarits (bls. 109) eru
ný tafllok eptir mann, sem er mjög framarlega meðal núlifandi skákrit-
höfunda, og endurprentum vér það hér - með ánægju: 46. Tafllok eptir
6