Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1915, Page 11
Meistarinn kennir. — Sjó, vitheimur víkkar,
Veraldarbölið í friðsælu snýst, —
stundarheims barnanna bústaður prýkkar
blikstöfum skærari’ en orð fái lýst, —
sál vor í himneskum hreinleika fríkkar,
hugurinn alfrjáls úr jarðfjötrum brýst.
Meistarinn keniur. — I kvöldblænum hljóða
kveðjan hans ómar und stjarnanna skör.
Ó, að oss veittist hann velkominn bjóða,
verða með honum í dýrðlegri för,
færa’ honum reykelsi lofsöngva’ og ljóða,
líísgátu vorrar fá ráðning og svör!
Meistarinn kemur. — í mannheimum standa
mænandi’ í sólheima fylkingar hans.
Lútum í auðsveipum lotningar anda
ljósinu’ um skínandi merkisstöng hans!
Reynum í kærleika verkin að vanda,
vökum í blikinu’ af stjörnunni hans!
Guðm. Giiðmundsson.
2*
11