Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1915, Síða 12
Annie Besant.
Pað fær engum dulist, scm fylgt hcfir mcð athygli and-
legum þroska vestrænna þjóða á siðasta mannsaldri, að
konur hafa viðasthvar lagt drjúgan skcrf til menningarinnar.
Með llcstum stórþjóðunum hafa risið upp kvcnskörungar,
scm eigi hafa lálið minna til sin laka en þeir karlmenn, cr
fremstir cru taldir í röð menningatfrömuðanna, og það á
mörgum sviðuni, i skáldskap, Jistum, visindum og |)jóð-
þrifastörfum. Ein al' þessum konurn, og el' til vill frcmst
þeirra allra í mörgum greinum, er Annie Besant, forseti
Guðspekisfélagsins. Nafn hennar er að heita má kunnugt
hverjum mentuðum manni um viða veröld. Margir nefna
það með ást og lolningu, aðrir ypta öxlum og telja það
hugarburð einn og draumóra, er hún heldur fram, og enn
aðrir telja starfsemi hennar allnigaverða og jafnvel skað-
vænlega, en allir, sem nokkuð til þekkja og óvilhalt dæma,
Ijúka upp einum munni um gáfur hennar og sálarþrek. Þvi
vcrður heldur eigi mótmælt, að hún er og liefir um langt
skeið verið knýjandi framsóknarall í andlegri menningar-
starfsemi mannkynsins.
Það er svo um Annie Besant sem mörg önnur mikil-
menni, að þroskabraut hcnnar hefir verið þung og þyrnum
slráð. Hún hefir áll ótal þrekraunum að mæta, en sál
12