Heimir - 01.11.1908, Síða 8
io4
HEIMIR
in upp á ný, er var auS/itaö í fer;ka miuai tnargra, og gengiö
haföi sem arfsögn í söfnuöinum, en nú oröin blönduö grískn
heimspekinni, svo aö búið var að hefja persónu Jesú, að dæms
Páls, er vildi gjöra 'nann yfirmannlega veru aö nokkru leyti,
upp í guða töluna. Og var henni í fyrstu vel tekiö víða og þar
á meðal í Róm, svo Róma byskup, er ekki var þá oröinn páfi,
féllst á hana. En bráðum komu andmæli, og brutu andmæl-
endur á, að í heila öld hefði hinn kristni fiokkur forðast þessa
villu, er væri gyðingdómur og Ebjónitiska.
Deilan enti þannig, að Páll frá Samosata var rekinn frá
byskupsdæmi sínu árið 269, og 3 árum síöar útbyggt úr kristn-
um sið. En þeirri deilu var ekki lokið með því. Hún aðeins
lá niðri meðan á ofsókn Galeriusar stóð, gegn kristnum mönn-
um, er stóð með mikilli grimmd í rúm 10 ár, upp að árinu 311.
Og voru ofsóknirnar mest reknar austur í Asíu og Egyptalandi,
þar sem þessar skoðanir áttu dýpstar rætur.
Eíkt og með kenningar kyrkjunnar voru óteljandi tnisinun-
andi skoðanir á siðurn og reglugjörðum kyrkjunnar, er valdandi
urðu þungum deilum svo að einlægir smáklofningar áttu sér
stað. Aðallega var það um það, hvefara ætti með þá, er fallið
höfðu frá trúnni, meðan á ofsóknunum stóð. Því það voru
altaf til nógu margir, er unnu sér það til lífs, að fórnfæra fyrir
skurðgoöunum, þegar þess var krafist. Nokkrir vildu ekki leyfa
þeim inngöngu til fullra réttinda á ný, eins og Novatian byskup
í Róm, og ennfremur láta víkja þeim öllum úr kyrkjunni er
drýgði einhverja glæpi. Það var puritana flokkur þeirra tíma.
Aðrir héldu fram að kyrkjan væri líkt og Nóa-örkin, full hrein-
um og óhreinum dýrum, og yrði svo að vera til síðasta dags.
Þeir unnu að lokum sigur, því þeim megin var fjöldinn, enda
hagnaður safnaðanna mælti sterklega með því að þeim væri
ekki útskúfað er vera vildi með.
Upp að árinu 325 er tæpast hægt að tala um nokkra eina
almenna skoðun á nokkrum lærdómum og siðareglum kristninn-
ar, og því „conformity" manna og hlýðni eða undirgefni undir
eina skoðun, varð að iniðast við skoðanina á þeim stað er þeir