Heimir - 01.11.1908, Page 13
HEIMIR
1T>9
in, viö vinnu sína og á feröalagi. Á hverjum bakstíg og á
hverju götuhomi í borginni Byaantíum var rifrs't, á strætum úti
<og markaös torgum, af línsölum, matsölum og peningavíxlurum.
Væri kaupmaður spuröur hvaö marga „óholi“ þetta eöa hitt
kostaði svaraöi lvann: „Getin eöa ógetin persóna?" Spyröir þú
•'um verö á brauöi varsvaraö: „Sonurinn er óæðri fööurnum."
og spyröir þú uin hvert baöiö væri til, var svariö: „Sonurinn er
af engu tilorðinn."
Eftir þessari bjujun varð þingið. Keisarinn, er eítir því
•eina var sendur aö fá samþykktir og reyna að gjöra trúna aö
samtengingar bandi fyrir alt keisaradæmiö, svo aö allir skyldi
ihafa ein lög er hverjum gæti veriö ljós, uppgafst von bráöar, er
hann sá aö til engra nota ætlaði aö koma. Þaö er sagt að hann
hafi beðið þá aö hætta þessum hégómlegu stælum,koma á sam-
komulagi um,hvað verið gæti þeirra sameiginleg trú.oghrópað:
„Fáið mér aftur mína rólegu daga og mínar hljóöu nætur; ljós
og gleði í stað tára og andvarpana!'" Það er vel til, að hann
hafi efast um að það hafi veriö opinberun úr betraheiini, einsog
hann hafði áður sagt, er skaut honum því í brjóst aö kalla sam-
an þingið til þess að friða ríkið. Loks hótaði hann höröu, var
seinast Nikeu trúarjátningin alræmda samþykkt, er kyrkjan
hefir skoöað sem opinberun alls heilagleika síöan. Brögðum
var beitt til aö fá sem flesta til ab skrifa undir. Sumum voru
fengin eyöublöö, er þeir skrifuöu nöfn sín á. Þeim einsýnu,
er vitnisburö sáluhjálparinnar allaieiöu báru í auðu augnatópt-
inni, eins og þeir sögöu, var hjálpað með undirskriftina, eða
blaðinu hallað til svo það,er á því var, bæri undir blinda augað.
En þrír skrifuðu ekki undir, Arius, Eusebíus frá Nikomediu og
Theognisfrá Nikeu.er allir voru gjörðir útlægir og lýstir í bann,
En orsökin til þess að undirskriftir fengust, svo að frá
byrjun Júní öllu gat verið lokið 25. Ágúst, telur einn söguskrif-
arinn þessa: „Af ótta við keisarann eöa ráðamenn hans, af ótta
• við að baka sér óvild hjá æðstu prelátunum, eins og byskup
Rómu og Ale.xandríu, af ótta viö að veröa taldir villitrúarmenn
og verða smáðir, hataöir, bölvaðir og bannfærðir, settir í bönd,
gjörðir útlægir.sveltir, missa brauðin(snemma hefir það komiðtil).