Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1920, Page 71
iðunn
Einokunarverzlun Dana.
65
svo kunnugt sé. Aftur á móti virðist hagur félagsins
sjálfs ekki hafa verið sem glæsilegastur, því félags-
menn fengu árum saman engan arð af fé sínu, og
ieið eigi á löngu áður raddir fóru að hej'rast um
það meðal hlulhafa, að félagsstjórnin gætti illa skyldu
sinnar og færi jafnvel eigi sem ráðvandlegast með
umboð sitt. Reis að lokum megn óánægja út af þessu,
svo að traust og álit félagsins þvarr óðum, og varð
lítil bót að því, þótt skift væri hvað eftir annað um
stjórnendur, þvi óhöpp og örðugleikar steðjuðu þá
að úr öllum áttum. Var oft ærið ófriðsamt í álfunni
um þær mundir og dýrlíð mikil annað veifið, svo að
höfuðstóll félagsins reyndist ónógur, þegar til kom,
«n hluthafar hins vegar ófáanlegir til að auka fram-
Sög sin. Afleiðingin varð sú, að félagsstjórnin gerði
sér far um það eitt að takmarka útgerðina sem mest
og reyna að fá sem ódýrastar vörur án þess að hirða
nokkuð um vörugæðin, en þetta hvorttveggja olli aftur
hinni mestu óánægju á íslandi. Þegar svo ófriður reis
með Dönum og Svíum í kring um 16(50, keyrði alveg
um þvert bak, því sænskir víkingar hremdu skip fé-
lagsins hvert af öðru, og lyklaði með því, að félagið
Jagði alveg árar í bát og hætti siglingum til íslands,
enda leysti konungur það upp skömmu síðar.
Þegar hér var komið sögunni, hugkvæmdist kon-
ungi það ráð að fela örfáum nafngreindum mönnum
aðalútgerð til íslands, og voru ])eir ekki valdir af
verri endanum. Fremstir í ílokki þeirra voru Ilen-
rik Múller rentumeislari, faðir Kristjáns Múllers, er
fyrstur varð amtmaður hér á landi, Hans Nansen
yfirborgarsljóri í Kaupmannahöfn, Jónas Trellund
stórkaupmaður, er lengi hafði verið búsettur í Am-
sterdam, og borgarsljórarnir Kristófer Hansen og
Peder Pedersen. Áttu þeir að skifta höfnunum á
milli sin og teljast sjálíir fyrir útgerðinni, en þó var
þeim heimilað að taka aðra borgara í félag við sig
löimn VI. 5