Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 13
ÍÐUNN
Feröasaga um Suöurlönd.
7
Guðmundur er afar fjölhæfur listamaöur, leggur gjörva hönd á
svo aö segja allar tegundir Iistaverka. Hann hefir siglt heilu fleyi
fram hjá öllum öfgastefnum nútímans í list sinni. Það er eins og
einhver gömul menning lialdi honum frá þesskonar útúrdúrum og
þessi sama gamla menning skín út úr myndum hans, hrein og tær
og göfug.
Grein þessi er fyrirlestur, sem listamaðurinn flutti í Listvinafél.
lslands, og um leið og hún er ferðasaga, á hún lfka að sýna les-
endum Iðunnar listamanninn, og flytur því 3 af teikningum hans.
M. 7.
Heiðruðu tilheyrendur! Það litla sem eg get sagt
ykkur af ferðum mínum um Suður-Evrópu síðastliðið
vor, hefi eg ekki skrifað upp í réttri tímaröð, eða sem
ferðasögu í eiginlegum skilningi — heldur sem endur-
minningar — sundurlausar og marglitar minningar manns,
sem með litlum möguleikum og þekkingu af skornum
skamti, vill sjá sem mest og best. Það sem eg segi um
þjóðir og málefni, má ekki skoðast sem dómur eða rök-
færðar vísindasannanir, til þess nær þekking mín of
skamt. Það er skoðun mín, að maður sá sem ekki
kann mál þjóða þeirra, sem hann gistir, geti aldrei gert
sér réttar hugmyndir um þær, síst þegar kringumstæður
og tími er hnitmiðaður við hálftóma pyngjuna.
Eg bið ykkur nú að stíga með mér á töfraklæði
ímyndunaraflsins og fljúga með mér til Munchenar-
borgar við Alpafjöll, borgarinnar sem trúarsterkir munk-
ar lögðu hornsteinana að og síðar varð miðstöð vís-
inda og lista á meginlandinu. Þar mætast germanskir
og rómanskir straumar, og í hinu marglita stórborgar-
lífi, sjást einhverjar menjar flestra þjóða. Af 800,000
íbúum Miinchenar eru 7500 listamenn, þeir búa flestir
í Schwabing; það var áður sjerstæður borgarhluti en
er nú fullkomlega innlimaður í borgina. Það má segja
að listamennirnir setji sinn svip á þennan borgarhluta