Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Qupperneq 14
8
Guðmundur Einarsson:
IÐUNN
og í 3. hverju húsi eru ein eða fleiri vinnustofur fyrir
listamenn og svo líka heilar byggingar; þar hittast ríkir og
fátækir, alt frá amerískum áuðkýfingadætrum með snoð-
klipt hár, gleraugu á stærð við undirskálar og demants-
hring á hverjum fingri, til grindhoraðra Rússa, sem
ganga berhöfðaðir árið um kring af þeirri einföldu
ástæðu, að það er betra að ganga berhöfðaður en
berfættur. Á hinum mörgu skólum kljást allir þessir
»ismar« og nýir skapast. Hinar mörgu listverslanir og
sýningar, sem eru yfirleitt mjög frjálslyndar — sérstak-
lega við þá sem »nafn« hafa — gera sitt til að halda
lífinu í þessum listamannasæg, en margur verður þó'
útundan, það sér maður á veturna þegar kuldinn herj-
ar hjá þeim, sem ekki geta hitað upp hjá sér og ekki
hafa annað en gömul blöð að breiða fyrir gluggana.
Þá flýja þessi sjálfkvöldu olnbogabörn á veitinga- og
kaffihúsin og sitja þar yfir »hálfum bjór« eða kaffibolla
eins lengi og vært er, og dreymir um að »slá í gegn«
og »selja« fyrir hundruð þúsunda. í þessi 4 ár sem eg
dvaldi í Miinchen, hefi eg séð margt glaðlegt andlit og
vonbjart breytast í vonleysis- og sorgarandlit, og |svo
eins hitt, að þeir sem lifðu á kartöflum og skemdum
baunum mánuð eftir mánuð og seldu bækur sínar og
föt til að borga »módellum« sínum, urðu frægir og
ríkir í einni svipan.
Eg gæti haldið áfram að tala um Miinchen í alt
kvöld, en það var meiningin að komast eitthvað sunnar
og þess vegna skulum við bregða okkur til höfuðborg-
ar Tjekkóslava — Prag. Við förum um Niirnberg, Leip-
zig og Dresden.
Dresden er mikill listabær í orðsins fylsta skilningi
og hefir að geyma mörg og merkileg söfn.
Með sínum miklu barok og gotnesku byggingum má