Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Síða 16
:I0 Guðmundur Einarsson: IDUNN
hún teljast með fegurstu borgum með sín gömlu veð-
urbörðu koparþök og turna. Saxland hefir eigi síður en
Dayern átt því láni að fagna, að eiga framtakssama og
listelska konunga, sem hafa látið sig hina skapandi feg-
urðaranda meiru skifta en púður og blý. — Frá Dres-
den liggur leið okkar upp Elbedalinn til Prag.
Við fyrsta tillit virðist Prag heldur ljótur og sóðalegur
bær, en við nánari kynningu vinnur borgin. Umhverfið
er mjög fagurt, fólkið alúðlegt og frjálslegt, hið ný-
fengna sjálfstæði liggur í loftinu og hið sjálfsagða um-
ræðuefni er stjórnmál. A kaffihúsum rífast menn há-
stöfum og á götuhornum standa menn í hópum og tal-
ast við með miklum handatilburðum. Annars virtust mér
Tjekkar eins þolinmóðir við að ganga sínar breiðu aðal-
götur eins og við Reykvíkingar Austurstræti; hvort það
er hin nýfengna sjálfstæðismeðvitund eða annað sem
gerir óróann í blóðið, veit eg ekki. Ekki get eg sagt
neitt gott um það sem eg sá af myndlist í Prag og sá
eg þó allmika sýningu Listvinafélagsins þar, en margan
fiðlusnillinginn hefir Prag fóstrað, má þar síðastan nefna
Vasa Prichoda, sem lagði undir sig heiminn á einu ári,
vart tvítugur.
Wien, sem var vagga hljómlistamanna og borg gleð-
innar, getur varla kallast það lengur þó hún eigi Strauss
■og hinn heimsfræga skemtistað Prater, þá hefir hið
gamla »Wiener-humor« dofnað við eldraunir stríðsins
og þess ógurlegu afleiðinga.
Rúnir hungurs og örbirgðar les maður í öðru hvoru
andliti og það enn hrottalegar, þar sem blóðsugur þjóð-
arinnar leyna ekki feng sínum, eg á við Gyðingana sem
keyptu Wien — eða það sem eftirsóknarverðast var af
borginni — á meðan neyðin var stærst. »Wien ist nicht
mehr wie es war«, segja Wienarbúar í afsökunarróm,