Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 43

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 43
ÍÐUNN Heilindi. 37 hún getur kastað Ijósgeisla kærleikans inn í myrkrin til hans og bent honum í rétta stefnu. Og hún er altaf sið- ferðislegt afrek þess, sem veitir hana af heilum huga. 011 andmæli gegn henni hlyti að vera magnlaus. En það er til önnur fyrirgefning, sem stefnir undan brekkunni. Hún leggur áherzlu á þægindin við að fyrirgefa, vinnur sér fyrirgefninguna létt með því að gera sökina að hé- góma, grauta saman réttu og röngu. Það er fyrirgefning, sem kostar ekki mikið, ryður torfæru úr vegi elskanda, sem vilja njótast o. s. frv. Það er »yndislega fyrirgefn- ingin«, sem E. H. Kv. talar um, ein af munaðarvörum nútímans. E. H. Kv. vill ekki viðurkenna, að stefna sín í þessu efni sé í neinu frábrugðin stefnu Krists. Hann snýr at- hugasemdum mínum við lífsskoðun sína upp í árás á kenningu Krists. Hann gerir hans kröfur að sínum kröf- um. En sér grefur gröf, þó grafi. Samtímis því að hann mælir máli fyrirgefningarinnar, breytir hann á móti anda hennar á hverri blaðsíðu greinar sinnar. Eg efast ekki um, að hann hafi gjarnan viljað fyrirgefa mér aðfinsl- urnar að verkum sínum, viljað benda mér á veilurnar í lífsskoðun minni í fullu bróðerni. En til þess þurfti dá- litla sjálfsafneitun. Og þegar til hennar kom, skriðnaði grundvöllurinn undan miskunnseminni. Þetta var alveg eins og við mátti búast fyrirfram. En hvernig getur maður gerzt svo djarfur að skrifa lofgjörð um mildi og mannúð og vera í sömu greininni fullur úlfúðar og hefndarhugar fyrir lítilfjörlegar og jafn- vel ímyndaðar mótgjörðir? Hvernig getur jafnskýr maður og E. H. Kv. látið sér koma til hugar, að almenningur glæpist á slíkri málsvörn? Svarið er einfalt, og eg ber það fram, þó að E. H. Kv. kunni að kalla það »falsaða sanngirni«. Alt þjóðfé-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.