Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 44

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 44
38 Sigurður Nordal: IÐUNN lag vort, líf nútímamanna yfirleitt, er gagnsýrt af sömu óheilindunum og grein hans. Menn kunna ósköpin öll af siðferðiskröfum og heilræðum, sem eru ekki annað en dauð heilafylli. Siðferðisuppeldið vantar, kröfurnar til samkvæmni eru látnar sitja á hakanum, breytnin er »fyrirgefin«. Framfarir nútímans hafa ekki stefnt að skapstyrk og hreinlyndi. Menn hafa mannúðarkröfur Hrists á lofti, en gleyma því, að hann örvænti einmitt helzt um sálarheill hræsnaranna, allra manna. E. H. Kv. vill ekki viðurkenna, að frelsi, mannúð og skilningi geti verið nein takmörk sett. Hann vill ekki skilja, að frelsið geti orðið afskræming af sjálfu sér, leitt af sér stjórnleysi og óskapnað. Eg hef viðurkent og þakkað það, sem gott var hjá þeim kynslóðum, sem mest hafa losað um böndin og herjað á hleypidómana. Eg skil vel, að það var fagnaðarerindi þeim mönnum, sem aldir voru upp í hörku og þröngsýni. En það er ekki fagnaðarerindi þeirri kynslóð, sem framar öllu skortir fótfestu. Einhversstaðar verður að nema staðar, öll siðmenning heimtar skefjar, takmarkanir: Margir spá því að vísu, að héðan af verði ekki staðar numið fyrr en hin vestræna siðmenning sé liðin undir lok. En varla er að búast við, að það gangi baráttulaust. E. H. Kv. hefur ekkert annað en hnjóðsyrði að bjóða þeim mönn- um, sem vilja koma meira skipulagi á nútímalífið. Hann segir, að ef stefna eigi burt frá frelsinu, myndi lífið í sínum augum verða að samfeldri andstygð. Margir ungir menn munu geta kveðið líkt að orði um lífið, eins og það er að verða og mun verða, ef það stefnir sífelt í »frelsis«-horfið. Þá væmir við þeirri menningarstefnu, sem breiðir dýnu efnalegs velfarnaðar og kæruleysis- þæginda yfir örbirgð og óheilindi siðferðis-lífsins. Þeir

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.