Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Page 45

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Page 45
IÐUNN Heilindi. 39 myndi geta sagt, að þeim fyndist lífið vera að verða að ósamfeldri andstpgð. Meðan hugsun mannkynsins var á æskuskeiði, var fá- breytt, skýr og sterk, var hún megnug þess að stjórna verkunum. Sókrates skilur ekki, að menn breyti rang- lega, nema af því þeir viti ekki betur. I Hávamálum er kallað fyrir öllu að vera »snotr maðr«. Þá muni annað koma af sjálfu sér. Síðan hefur hugsanalífið vaxið af- skaplega að víðáttu, en ekki að sama skapi að þrótti og skýrleik. Persónan hefur klofnað. Menn vita ógrynnin öll, sem aldrei verður lifandi þáttur í breytni þeirra. Hugsunin fer sínar leiðir, leikur sér í ábyrgðarleysi að háleitum hugsjónum og skaðvænum skoðunum, hverjum innan um aðrar. Það er ekki furða, þótt menn geti orðið áttaviltir og viti ekki upp né niður í sjálfum sér. Engin siðferðishugsjón er tímabærari á vorum dögum en sú, sem Hermann Keyserling hefur markað í þess- um orðum: Wir miissen wieder ganz werden: vér þurf- um a f t u r að verða heilir menn. Heilbrigt sálarlíf er sama og heilt sálarlíf. En honum er það fullljóst, að til þess verður að snúa aftur. Vér erum fullsæmdir af því að takmarka hugsunina og lækka hugsjónirnar> ef vér með því móti getum lifað miklu nær þeim en áður. Auðurinn er orðinn nógur til þess að vinna úr. Aðal- athyglinni verður að beina að samtengingu hugsjóna og lífernis. Það má fullyrða, að flestallir menn myndi vera sæmilega farnir, ef þeir gæti lifað eftir skárstu hugsjón- um sínum. Því er oft heillavænlegra að kenna þeim að- ferðir til þess, styrkja sjálfstraust þeirra með því að láta þá vinna marga smásigra, en að fá þeim nýjar hug- sjónir, sem þeim finnast vera ofar öllum skýjum og ör- vænta um að geta nokkurn tíma lifað eftir. Eg get borið meiri virðingu fyrir Bismarck, sem segir: »eg hef

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.