Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Síða 49

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Síða 49
IÐUNN Heilindi. 43 betri opinberun um þá hluti en þekkingu á voru eigin sálarlífi. En sá, sem aldrei hefur fundið tvö andstæð öfl togast á um persóna sína, hefur aldrei vitað, hvað er að lifa. Vér höfum (sízt nú á dögum, eftir að vér höf- um lært að líta á þróunina sem hátt lífsins) engin skil- yrði til þess að gera oss tilveru í hugarlund, þar sem önnur þessara andstæðna væri numin burt. Enda erum vér flestir tvíhyggjumenn í öllu dagfari voru og breytni. Því getur verið, að slíkar bollaleggingar um einangraða tilveru góðs og ills skifti litlu máli. Vér stöndum á því þroskastigi, að vér neyðumst sífelt til að gera þennan greinarmun, ef vér eigum ekki að verða að aumingjum En nú má segja, að úr því að aldrei verði komizt út fyrir ágizkanir um dýpstu rök tilverunnar, þá sé meinlaust að taka fallegustu tilgátuna, en það sé vitan- lega kenningin um einveldi hins góða. Það er alt undir því komið, hvort fallegasta tilgátan er um leið sú sennilegasta, hvort menn geta aðhylzt hana af heilum huga. Því að hver slík tilgáta um til- veruna verður um leið, eða ætti að verða, leiðsögutil- gáta, sem menn höguðu lífi sínu eftir. Að öðrum kosti er hún reist á óheilindum og leiðir önnur ný af sér. Mér virðist einhyggjan ekki sigla hjá þessum skerjum. Eg tala hér ekki um þá einhyggju, sem þurkar alveg út andlegu hlið tilverunnar: efnishyggjuna. Á hana hafa víst margir lagt fyllsta trúnað, fyrr og síðar, og hún hefur komið þeim á siðferðisstig, sem er mun lægra en nokkurs villidýrs. En eg skal minna á einveldiskenningu kristninnar, eins og hún hefur komið fram á síðustu áratugum. Samkvæmt henni getur hið illa ekki verið neitt annað en hið góða dularbúið eða misskilið, og alt má lækna og bæta með kærleika og skilningi. Fögur kenning að vísu. En ekki nema kenning! Ekki einungis
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.