Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 3
Kirkjuritið.
JÓLASÁLMUR.
Sjá! Ennþá kemur Kristur
í kveld með heilög jól.
Hann var og verður fyrstur
að veita líf og sól.
Heyr! Enn liann er að kalla
og opna himins hlið,
að blessa og elska alla
og öllu að hoða frið.
Þú heimur sjúki særði,
þín synd var þung sem blý,
en Kristur frið þér færði,
og færir enn á ný.
Um allar þínar álfur
snýst alt um ráðþrot sín;
þó sært þig hafir sjálfur,
hann sárin læknar þín.
Minn drottinn! Þig vér þráum,
og þína hjálp og vörn.
Ó, kom frá himni háum,
á heimsins fáráð hörn
lát náðar daggir drjúpa
og dýrðar skína sól,
og sérhverl kné lát lcrjúpa
við krossins náðarstól.
Ó, lierra, vertu hjá oss
og hjörtun vermdu köld.
Ef aldrei fer þú frá oss,
mun friðar ríkja öld.
Um alla himna og lieima,
i lij ..rta sérhvers manns
lát lífsins lindir streyma
og ljósið kærleikans.
Ólína Andrésdóttir.