Kirkjuritið - 01.12.1936, Page 10

Kirkjuritið - 01.12.1936, Page 10
100 Sveinn Víkingur: Jólaprédikun. Kirkjuritið. ósjálfrátt hlýrra, brosið innilegra og sannara, er vér bjóðum hvert öðru gleðileg jól. Vér erum orðnir nýir og sælli menn á nýrri jörð. Hvað hefir skeð? Ilvað er þetta nýja, sem fyllir sál vora fögnuði og birtu og helgi á jólunum? Það er jóla- gjöf Jesúbarnsins. Það er þetta, að á bátíð frelsarans þiggjum vér hjálpræðið alt, ekki aðeins nýjan bimin, heldur einnig nýja jörð. Þessvegna hlessum vér jólin. Þessvegna eru þau fagnaðarhátíðin stærsta. Því að ekk- ert veitir mönnunum meiri fögnuð og sælu en að ástunda það, sem er fagurl og rétt og gott. Ekkert ljós er bjartara og lilýrra en blys hins starfandi kærleika. Þó brosir oss eigi aðeins binn bjarti biminn eilífðar- innar og kærleikans. Þá verður jörðin sjálf dýrðleg og ný. Algóður Guð gefi öllum gleðileg jól og gjafir frelsar- ans, nýjan himin og nýja jörð. Amen.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.