Kirkjuritið - 01.12.1936, Page 14

Kirkjuritið - 01.12.1936, Page 14
404 Jón Helgason: Kirkjuritið. innar. Svo víðtæk urðu áhrif þessarar hreyfingar þar í landi, að þar má með sanni segja, að nýir tímar hefjist með siðbótinni, og alt andrúmsloftið smámsam- an ummyndist frá rótum, ekki aðeins innan kirkjunnar, heldur einnig þjóðlífsins yfirleitt. Af þeim andlegu öfl- um, se'm áhrifaríkust liafa orðið fyrir menningu þjóð- arinnar og allan hugsunarhátt, verður naumast bent á nokkurt, sem ekki eigi beinlínis eða óbeinlínis rót sína að rekja til þessarar hreyfingar. Hér urðu siðaskiftin siðabót í orðsins fylstu merkingu. í meðvitund þessarar alviðurkendu staðreyndar þótti sjálfsagt, að efna til sérstakra liátíðahalda í minningu þess, að liðnar voru fjórar aldir frá því er þessir áhrifa- ríku viðburðir gerðust þar i landi. Yar þvi sérstök nefnd skipuð næstliðinn vetur til þess að undirbúa þessa minningarhátíð, og pennafærustu sagnfræðingar fengnir til þess að rita um sjálft hátíðartilefnið. Jafnframt var ákveðið að hjóða sem heiðursgestum til hátíðarhald- anna fulltrúum frá öðrum evangeliskum þjóðum, og varð það ánægjulegt hlutskifti þess, sem þetta ritar, að taka þátt í þeim sem fulltrúi hinnar islenzku kirkju. Yorum við alls tólf, sem sá lieiður veittist, en einn þeirra, erki- biskup Erling Ejdem í Uppsölum, forfallaðist á síðustu stundu. Stóðu þessi kirkjulegu hátiðahöld yfir í 5 daga, frá 28. okt. til 1. nóv. — en einnig vikuna á eftir fóru fram víðsvegar um land samskonar hátíðahöld, bæði í kirkj- um, samkomuhúsum og skólum. — I Kaupmannahöfn hófusl liátíðahöldin að kvöldi miðvikudags 28. okt. í Nikolaj-kirkjunni, sem þó er nú fremur að telja til samkomuhúsa en kirkjuhúsa í venju- legum skilningi, enda telst aðeins turninn með réttu til leifa hinnar upphaflegu Nikulásarkirkju. Kirkja þessi eyðilagðist sem sé 1807, er Englendingar herjuðu á Khöfn og reis ekki úr rústum fyr en fullum 100 árum síðar, er auðmaður nokkur lagði fram fé til þess að

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.