Kirkjuritið - 01.12.1936, Page 19

Kirkjuritið - 01.12.1936, Page 19
KirkjuritiS. Minningarhátið siðbót. í Danmörku. 409 upp heiður og hreinn (eftir molluþrungna undanfarna daga, er ekki höfðu spáð neinu góðu um veðráttufarið þennan dag). Blöktu fánar á flestum opinberum bygg- ingum. Frá turni dómkirkjunnar (Frúarkirkjunnar) kváðu við sálmatónar frá hornasveit, uppi á hásvölum turnsins. Bárust þeir þaðan út yfir borgina í morgun- kyrðinni, en fólk, sem á reiðhjólum skundaði til vinnu sinnar, nam staðar víða í nálægum götum, til þess þó að fá dálítinn „smekk“ af þessu yndislega forspili minn- ingarhátíðarinnar. Kl. 9^2 söfnuðust allir þeir andlegrar stéttar menn, sem taka vildu þátt í hátíðarguðsþjónustunni í dóm- kirkjunni, saman í liringsal (rotunde) dómkirkjunn- ar, en þaðan skyldi haldið í skrúðgöngu kringum kirkj- una og um aðalfordyri gengið til sæta inni í kirkj- unni. Ánægjulegt er þeim, er þetta ritar, að minnast þess, að fyrsti maðurinn, sem ég rakst á, er inn í hringsal- inn kom, var gamall skólabrcðir og félagi frá náins- árunum, Adolf Niclassen (Nicolaisen nefndist hann venjulega á skólaárunum) fyrv. prófastur á Fjóni, nú uppgjafaprestur (búsettur í Otterup). Þarf ég ekki að taka það fram, hve ánægjulegt mér þótti að liitta þarna þennan gamla og einkarkæra félaga minn og vin. Smám- saman fyltist hringsalurinn af biskupum, próföstum og prestum, öllum hempuklæddum, og 5 mínútum fyrir kl. 10 lagði skrúðfylkingin á stað úr hringsalnum og liélt vestur með kirkjunni norðanverðri, fram hjá háskólan- um og biskupssetrinu og inn um aðaldyr kirkjunnar. Er skylt að taka það fram, að fulltrúi íslenzku kirkj- unnar var settur í fararbrodd skrúðfylkingarinnar við hlið yfirbiskups (primas) dönsku kirkjunnar og valið efsta sæti á kirkjugólfi, næst sæti konungslijóna and- spænis prédikunarstól. Með þessu liafa forgöngumenn minningarhátíðarinnar viljað votta kirkju íslands og sambandsþjóðinni virðingu sína og vinarhug. Má ekki minna vera, en að þess sé getið hér, þótt einhver kunni

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.