Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 21

Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 21
Kirkjuritið. Minningarhátíð siðbót. í Danmörku. 411 að leggja það út sem fordildarvott af hálfu þess, er hér heldur á penna. Tóku 400 andlegrar stéttar menn þátt i þessari skrúðfylkingu (tveir saman í hverri röð), og var talið, að ekki hel'ði fyrri sést þar í horg stærri fylking kennimanna ganga til kirkju. í dómkirkjunni, sem var fagurlega skreyll livítum og gulum Krysantemum-blómum og ljósum innan frá alt- ari og úl í fordyri, var livert sæti skipað á gólfi og svöl- um, þegar inn var komið. Var þar samankomið alt stór- menni borgarinnar með konungshjón, ríkiserfingja og ýmislegt af skylduliði konungs og hirðmönnum í hroddi fylkingar. En jafnskjótt og kennimannafylkingin kom inn í kirkjuna, stóðu allir á fætur í sætum sínum og inn- göngulag hljómaði frá hinu mikla organi kirkjunnar, en dómorganistinn, organsnillingurinn N. O. Raastad, sat við organið. Eftir að allir voru komnir til sæta sinna, hófst guðs- þjónustan með þeim hætti, að kirkjusöngflokkurinn söng sem „inntroitus“ 100. sálm Davíðs. Þá var lesin venjuleg kórdyrabæn og síðan sunginn sálmurinn „Den signede Dag med Fryd vi ser“. Þá hófst víxlsöngur prests, kórs og safnaðar. Hafði sá víxlsöngur verið saminn af dr. Brodersen stiftprófasti lil afnota við þessa minningarguðsþjónustu. En þrír prestar voru fyr- ir altari, stiftprófastur og 2 aðstoðarprestar. Var þessi tíðasöngur mjög fagur og liafði Raastad organisti sam- ið lögin. Á eftir pistlinum var sunginn sálmurinn: „Vor Guð er horg á bjargi traust“. Þá steig Kaupmannahafn- arbiskup, dr. Fuglsang-Damgaard i stólinn og flutti há tíðarprédikunina. Biskupinn lagði úl af orðunum í 1. Pét. 1: „Alt liold er sem gras og öll vegsemd þess sem hlóm á grasi: Grasið skrælnaði og ljlómið féll af, en orð drottins varir að eilífu“. Vegna hinna erlendu gesla endurtók hiskup texta sinn á þýzku, ensku og frönsku. Prédikun hisk- ups var áhrifamikil og prýðilega flutt. Tók biskup það

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.