Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 24

Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 24
H4 Jón Helgason: Kirkjurití<5. og var svo mikill, að stöðvast hlaut öll vagnaumferð um torgið. Skólasveinar frá Metropolitan-skólanum léku með leiðbeiningu æfðs leikara þrjú hundruð og fimtíu ára gamalt leikrit „Karrig Nidding“ eftir Hieronymus Justesen Ranch. En áður en leikurinn hófst, höfðu skóla- sveinar gengið fylktu liði frá skóla sínum, klæddir svört- um búningi skólapilta, eins og hann tíðlcaðist á sið- bótatímunum, numið staðar á háskólatröppunum og sungið þar nokkura gamla miðaldarsöngva og haldið síðan til Gamlatorgs, þar sem leiksvið hafði verið reist undir beru lofti. Þótti áheyrendum gaman að leiknum þótt ómerkilegur væri að efni til, og mörg gjallarhorn báru út til áhorfendanna orðin, sem töluð voru á hinu opna leiksviði fyrir framan gamla ráðhúsið. Stóð þessi leiksýning yfir nál. 1% stund. — Kl. 4 var aftur komið saman í dómkirkjunni, og var hið mikla kirkjurúm aftur alskipað kirkjugcstum. En til þessarar samkomu var efnt, til þess að erlendir geslir hátíðarinnar gæti borið þar fram kveðjur „að heiman“ og heillaóskir hinni dönsku kirkju til handa i tilefni dagsins. Var ræðupallur reistur fremst í kórnum, en gestunum og hinum dönsku biskupum ætluð sæti. fyrir aftan ræðupallinn. Hófst þessi athöfn með því, að sung- inn var sálmur. Þá kvaddi biskup Kaupmannaliafnar sér hljóðs, ávarpaði heiðursgestina nokkurum orðum út frá orðum postulans: „Allir hræðurnir biðja að heilsa yður“. Minti hann á það, að livað sem liði þjóðerni, þá væru allir evangelisk-kristnir menn limir á sama líkama, sem hér væri líkami hinnar lútersku kirkju. Eflir að hann hafði hjartanlega þakkað erlendu gestunum fyrir komuna bæði á dönsku, þýzku, ensku og frönsku, og lesið upp nokkur heillaóskaskeyti (m. a. frá dómkirkju- presti, séra Bjarna Jónssvni), tóku heiðursgestirnir til máls og fluttu kveðjuávörp sín. Fyrstur lók til máls fulltrúi íslenzku kirkjunnar og siðan hver af öðrum, unz allir höfðu borið fram heillaóskir sínar. Talaði

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.