Kirkjuritið - 01.12.1936, Side 29
Kirkjuritið. Minningarhátíð siðbót. i Danmörku. 419
var vandað til þessa
guðsþjónustuhalds í
öllum kirkjum höfuð-
borgarinnar, enda ó-
venjuleg aðsókn sögð
að öllum kirkjunum.
Sá, sem þetta ritar,
sótti Holmenskirkju
við hámessu þennan
dag. Var þar sein
geta má nærri hvert
sæti skipað. Höfuð-
prestur kirkjunnar
dr.Neiiendam prédik-
aði. Því miður veitti
mér erfitt að lieyra
prédikun hans úr sæti
mínu i kirkjunni, en
á andlitum manna
mátti sjá, að hið tal-
aða orð féll þeim vel
í geð. En þess betur
naut ég tiðasöngsins frá altari og var mér það þvi meira
ánægjuefni, sem fyrir altarinu var landi vor, séra Hauk-
ur Gíslason, sem er raddmaður ágætur. Virtist öll með-
ferð hans á tónum og texta með þeim ágætum, sem ég
sjaldan Iiefi heyrt fyrri í kirkjum Kaupmannahafnar.
Kl. 3 síðdegis var oss hátíðagestum boðið til skilnað-
arsamsætis hjá einum af forgöngumönnum þessara há-
tíðahalda, dr. theol. A. Th. Jörgensen. Var þar auk að-
komu-gesta fjöldi mætra manna saman kominn og marg-
ar ræður fluttar á ýmsum tungumálum.
En þótt svo væri látið heita, sem hinum almennu
(officiellu) hátíðahöldum i tilefni 400 ára afmælis sið-
bótarinnar væri lokið þennan dag, þá mun mega segja,
að alla næstu viku væri siðbótin og áhrif hennar á alt