Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 30
420
J. H.: Minningarhátíð.
Kirkjuritið.
kirkjulíf Dana, menningarlíf og vísindalíf, aðalumræðu-
efni á öllum kirkjulegum samkomum um land alt. Bend-
ir alt til þess, að Dönum, ekki sízt kirkjulýð öllum, sé
einkarljós þakkarskuldin, sem þeir eru í við liina miklu
breytingu á öllu kristnihaldi, sem með þeim var lögfest
30. október 1536.
Sem að líkum lætur, birtust þessa daga ýmis rit varðandi sið-
bótina í Danmörku og þykir mér rétt að nefna hér nokkur hin
helztu þeirra, ef einhverjum, sem þetta les, kynni að leika hugur
á að kynna sér þau eða eitthvert þeirra nánar. Ber þar fyrst að
nefna hátíðarrit prestafélagsins danska: , Luthers Arv og Dan-
marks Kirke“, mikið rit og vandað, þar sem ekki færri en 30 hinna
pennafærustu kennimanna Dana hafa tekið höndum saman til
þess að gera lesendunum sem Ijósasta grein áhrifa siðbótarinnar
á kirkjulífið, menningarlífið og þjóðlífið i heild sinni. Þá hefir dr.
M. Neiiendam gefið út stutt og alþýðlegt yfirlit yfir siðbótarsögu
Dana: ,,1536“ — svo er titill bókarinnar — og er það sem
vænta mátti prýðilega samið. Sama er að segja um rit það, er ann-
ar af beztu kirkjusagnfræðingum Dana, P. Severinsen sóknarprest-
ur hefir samið og prenta látið: „Hvordan Reformationen indförtes
i Danmark“. Er það samið og prentað að tilhlutun kirkjumálaráðu-
neytisins og selst hinu vægasta verði (á 1 kr.), til þess að það
komist i sem flestra hendur. Loks má nefna rit L. P. Fabri-
cíusar sóknarprests og kirkjusöguhöfundar: „Vor Kirkes Reforma-
tion“ (384 blaðsíður, verð 8 kr.), þótt það að réttu lagi sé sérprent
úr 2. bindi kirkjusögu Danmerkur eftir sama höfund.
í lilefni þessarar hátíoar hefir verið efnt til samskota um alt
land í þvi skyni að reisa á einhverjum tilvöldum stað í liöfuð-
staðnum styttu til minningar um lögleiðslu siðbótarinnar. Hafa
menn hugsað sér hana sem háa ferstrenda og uppmjóa steinsúlu.
Á fæti (basis) minnismerkisins, sem ber súluna eiga að vera fjór-
ar háskurðarmyndir, er eiga að minna á nokkura höfuðviðburði úr
siðbótarsögunni dönsku. Er ætlast til að minnismerki þetta muni
kosta um 200 þús. krónur. Mun prófessor dr. J. Oskar Andersen
eiga hugmyndina, en uppdráttinn þeir Max Andersen myndhöggv-
ari og Lönborg-Jensen húsameistari.
Jón Helgason.