Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 38
AÐALFUNDUR „HALLGRÍMSDEII,DAR“.
Aðalfundur , Hallgrímsdeildar“ liófst með guðsþjónustu i
Stykkishólmskirkju 8. sept, að kveldi. Prédikun flutti séra Björn
Magnússon á Borg, út af Matt. 11, 16.—24.
Níu félagsmenn voru mœttir á fundinum og tveir gestir þeirra.
Morguninn eftir liafði séra Eiríkur Albertsson framsögu um:
Afstöðu íslenzku kirkjunnar til nútímans.
Urðu miklar og fjörugar umræður um málið lengi dags, en
engin samþykt var gjörð. Um kvöldið flutti dr. Árni Árnason,
héraðslæknir í Ólafsvík, erindi i Stykkishólmskirkju um: Sjálf-
stæði íslenzku kirkjunnar, við góða aðsókn almennings.
Fimtudag 10. sept. að morgni hófust umræður um umræðu-
efni dr. Árna, sjálfstæði isl. kirkjunnar. Margir tóku til máls.
Tillaga kom fram um að kjósa þriggja manna nefnd i málið, er
starfi til næsla aðalfundar, og 2 varamenn. Tillagan var sam-
þykt. Kosningu hlutu í nefndina: Dr. Árni Árnason, séra Þor-
steinn Briem, prófastur, séra Jósef Jónsson, prófastur, og til vara:
Séra Eiríkur Albertsson og séra Sigurður Ó. Lárusson.
Þá voru tekin fyrir venjuleg aðalfundarstörf.
Forseti séra Þorsteinn Briem bar upp þá tillögu félagsstjórnar-
innar, að kjósa sem heiðurfélaga deildarinnar þá:
Dr. Árna Árnason, liéraðslækni í Ólafsvík, og
kirkjuráðsmann Ólaf B. Björnsson, Akranesi
og samþykti fundurinn það í einu fcljóði.
Forseti gat þess, að 200,00 kr. tilheyrandi ,,Skálholtssjóði“ hefðu
verið lagðar inn í Söfnunarsjóð íslands, samkvæmt ályktun fyrri
fundar.
Nefnd um messuskifti og fyrirlestra við skólana skilaði störf-
um og voru tillögur hennar samþyktar, svo hljóðandi:
Séra Jósef Jónsson messi í Staðarhólsþingum.
Séra Þorsteinn Briem messi í Hestþingum.
Séra Ásgeir Ásgeirsson messi í Staoastaðarprestakalli.
Séra Björn Magnússon mespi í Garðaprestakalli á Akranesi.
Séra Ólafur Ólafsson messi í Helgafellsprestakalli.
Séra Þorsteinn I.. Jónsson messi í Nesþingum.
Séra Þorsteinn Ástráðsson messi í Staðarhólsþingum.
Séra Magnús Guðmundsson messi í Reykholtsprestakalli.
Séra Bergur Björnsson messi í Setbergsprestakalli.
Séra Einar Guðnason messi í Prestsbakkaprestakalli.
Séra Sigurjón Guðjónsson messi i Miklaholtsprestakalli.
Séra Sigurður Ó. Lárusson messi í Saurbæjarprsstakalli.
Séra Eiríkur Albertsson messi í Hvammsprestakalli.
Séra Jón Guðnason messi í Borgarprestakalli.