Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 20
114 E. S.: Við lindina. Marz. oss leiðina til Jjroska og hann gefur oss einnig viljann og kraftinn til framkvæmda. Þér sem berið leyndan harm í hjarta og' einnig þér, sem gangið fagnandi gleðinni i mót, staðnæmist þér í anda við lindina helgu, minninguna um holdi klædda J)jónandi elskuna, minninguna um drottin vorn Jesúm deyjandi á krossi, og horfið á mynd hans, hugsið um líf hans og þjónustu oss til handa, og þér munuð allir sjá heiðan liimin Guðs, himin heilagrar elsku og náðar hvelf- ast yfir höfðum yðar, })ar sem sorgin og gleðin verða eitl i unaði þess, að finna sig vera barn Guðs, og skynja það með sál og hjarta, að drottinn vor Jesús Kristur er mesti veruleiki lífsins og að hann er enn lifandi og starfandi meðal vor og fyllir oss helgum krafti til þjónustu og fórn- ar fvrir meðbræður vora og systur. Einar Sturlaugsson. Sá liggur neðst, sem hugsar hæst. Só liggur neðst, sem lmgsar bæst og liimni næstur er. Sá hreykist efst, sem gullið glæst að Guði vígir sér. Þó jarðarberið blátt sig fól und blaði í lífsins önn, J)á stendur trénuð liæst á ból bin hreykna, stolta bvönn. Ólína Andrésdóttir.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.