Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 42

Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 42
136 Erlendar fréttir. Marz. Heimsráð kirkjudeildanna. Fjórtón manna nefnd, með I)r. Temple erkibiskupinn af York i broddi fylkingar, gengst nú fyrir því, að stofnað verði heims- rað með kirkjudeildunum til þess að vinna gegn stríði. Sendir nefndin boðsbréf til kirkna þjóðanna, á þessa leið: „Á hættutímum bjóðum vér yður þátttöku í heimsráði kirkju- deildanna. Allur kristni heimurinn stendur nú augliti til aug- litis við öfl og vanda og erfiðleika, sem bjóða hugsjónum hans byrgin og ógna lifi hans. Oft hefir kirkjan áður ó langri leið fengið færi á að sýna, í slíkum raunum, hver hún er og að hún er eitt samfélag. Ýmsar stefnur innan kirkjunnar siðan 1910 hafa bent skýrt til þess, að heimsráð skyldi stofnað. En nú þrýstir ókristin og and- kristin öld oss þéttar saman. ()g enn krefst sjálfur drottinn kirkjunnar |>essa af oss öllum, sem trúum á hann. Að vísu verð- um vér enn að biðja og stríða fyrir fullkominni einingu. En þó er eining þegar fengin, þar sem vér lútum drotni vorum, og hana erum vér skyld til að láta koma í Ijós. Vér getum gjörl það, enda þótl vér segjum afdráttarlaust frá þeim mun, sem er á oss. Vér getum gjört það, þar sem vér eigum sama konung, eins og kemur fram i hreyfingunni, sem kend er við „trú og kirkjuskipun", og vér getum gjört það með baráttu gegn neyð veraldarinnar, eins og í „lífs og starfs“ hreyfingunni. Báðum þessum hreyfingum mun verða gróði að því að renna saman í eitt allsherjarstarf fyrir lieiminn. Vér ætlum oss nú ekki þá dul, að vér getum með íhugununi vorum trygt kristnu hugsjóninni sigur. I’að er á valdi Guðs eins. En vér trúum því, að vér séum á réttri leið, er vér iðr- umst misgjörða vorra og biðjum Guð með trúnaðartrausti uni nýjan þrótt. Vér horfum til Krists upprisins, og látum það verða oss hvöt lil að ganga fram i nafni hans, að heinmrinn skorar oss á hólm.“ Leiðrétting. Leið prentvilla hefir slæðst inn í sálm séra Þorsteins Krist- jánssonar í siðasta hefti Kirkjuritsins, bls. 87. Síðasta hendingin í miðversinu á að vera: ___________Mér lýsir hans Ijós ofar moldu._____________________ Kirkjuritið kemur út 10 sinnum á óri — alla mánuði ársins nema ágúst og septembermánuð — um 26 arkir alls og kostar kr. 5.00 árgangurinn. Gjalddagi 1. apríl — og 1. okt., ef menn kjósa held- ur að borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast séra P. Helgi Hjálmarsson, Hringhraut 144, sími 4776, Reykjavík.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.