Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 40

Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 40
134 Innlendar fréttir. Marz. hafði lagt fram skrá yfir mál, er hann óskaði að tekin yrðu til meðferðar ásamt málum, er kirkjuráðsmenn bæru fram eða siðar kynnu að berast fundinum. Buðu þeir, Gísli sýslumaður Sveins- son og prófessor Ásmundur Guðmundsson, forseta velkominn og kváðust vænta hins bezta af samstarfi við hann. Fyrir fundinn liafa verið iögð 18. mál. Af þeim hafa 11 eftir- greind mál verið tekin til meðferðar þá fjóra daga, er kirkju- ráðið, að sinni, sat að fundarstörfum: I. Sóknaskipun i Reykjavik. Svoliljóðandi tillaga samþ.: Kirkju- ráðið endurtekur áður gefin meðmæli sín með þvi, að lög verði setl um sóknaskipun í Reykjavík og felur forseta sínum að fá þvi framgengt, að frumvarp verði lagt fyrir Alþingi, nú eins og fyr, um þetta efni og fái þar samþykki. II. Prestssetarshús. Svohljóðandi tillaga samþ.: Kirkjuráðið mælir eindregið með því, sökum brýnustu þarfar, að reist verði að minsta kosti þrjú prestsseturshús á ári hverju. III. Endurskoffun sálmabókarinnar. Kosnir þeir prófastur Þor- steinn Briem og kaupm. Ólafur Björnsson til þess, ásamt forseta, að athuga málið til siðari funda. IV. Kenslubækur í kristnum fræöum: Sýslum. Gísla Sveins- syni og prófessor Ásmundi Guðmundssyni falið að koma með lillögur í málinu. V. Eftirlaun presta. Tekið til athugunar. Ályktun frestað til síðari funda. VI. Laus prestaköll. Svohljóðandi tillaga samþ.: Með því að allmörg afskekt prestaköll hafa árum saman verið prestlaus, en þjónusta nágrannapresta sérstökum erfiðleikum bundin, þá telur kirkjuráðið æskilegt, að guðfræðinemum, er stundað hafa nám í 3 ár eða eru á siðasta námsári, verði falið þar nokkurt prests- starf að sumarlagi eftir samráði við þjónandi nágrannaprest, gegn þóknun af því fé, sem sparast við það að prestaköllin eru óveitt. VII. Kirkjiifundir. Forseta ásamt formanni Prestafélags Is- lands, Ásmundi Guðmundssyni, og formanni kirkjufundanefndar, sýslum. Gísla Sveinssyni falið að taka málið til frekari íhugunar, sérstaklega með hliðsjón af því, að fundum þessum yrði hagað svo, að mönnum verði sem auðveldast að sækja þá. VIII. Hallgrímskirkja í Saurbæ. Samþ. svoliljóðandi tillaga: Kirkjuráðið leyfir sér að láta þá ósk i ljósi, að stærð fyrirhug- aðrar Hallgrímskirkju i Saurbæ verði miðuð við þörf og hæfi safnaðarins, og að hún verði að ytra útliti látin samsvara þjóð- legri fegurðarkend án sérstaks íburðar, en beri að innan af öðr- um guðshúsum þjóðkirkjunnar, sem nú eru hér á landi.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.