Kirkjuritið - 01.03.1939, Blaðsíða 26
Á boðunardag Maríu.
(Mæðradagssálmur).
í æskuljóma austræn mær
af engilsmunni kvcðju fær.
Eg hcyri’ hann mæla: „Heil þú sért.
sem heilög móðir kjörin ert“.
„Sjá, fyrir hæstan himinsmátt
und hjartarótum bera átt
hið æðsta lif: Guðs einkason,
— Guðs eiginn ljóma, heimsins von“.
IJú sælust allra svanna hér,
Guðs signuð móðir, dýrð sé þér!
lJú vígðir Guði vit og mál
og vaktir yfir drottins sál.
Vér mæðra vorra minnumst hér,
er móðir drottins tignuð cr.
Vér þökkum bljúg hvert bernskuhnoss
og bænir þeirra fyrir oss.
O, móðir, pund þitt mikið er.
O, móðir, drottinn treystir þér!
Hann lítil börn þér lagði í skaut, —
ó, leið þau ung á gæfubraut!
Þín köllun hátt við himin skín:
Að helga Guði börnin þín,
og verja þau gegn villu’ og synd
og vera þeirra fyrirmynd.
En þú, sem gefur börnin blíð —
ó, blessa allra mæðra stríð.
Og þú, sem bætir böl og sár, —
ó, blessa sérhvert móðurtár!
Vald. V. Snœvarr.