Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 36

Kirkjuritið - 01.03.1939, Qupperneq 36
130 íslenzkar bækur. Marz. Leggjum l>ví áherzlu á að nota fyrirmyndina meir en áður, ásamt öðrum góðum meðulum, til hjálpar við uppeldið, svo að landsmenn bátni, batni þangað til hver íslenzkur maður með fullu viti gjörir svo vel skyldu sína, fyrir framlíð sem nútíð, að hann verði — og þjóðin nær þeirri fullkomnun að verða heim- inum fyrirmynd að dugnaði og mannkostum. En til Krists sjálfs er að leita um fullkomnuslu fyrirmynd- ina, hans, sem beztur hefir stigið fótum á dui't jarðar. Iiákon Finnsson. Nýr áhug'i, ný trú, ný von. Þótt ég, vegna starfa minna á kennaraþinginu, gæti ekki sóll kirkjufundinn nema lítið eitt, fann ég, að þar var liressandi þyt- ur í lofti, og ég held, að þessi fríski, hlýji andvari hafi verið sterkasta „elementið“ á fundinum. Ég hefi hugsað nokkuð um þetta eftir að ég kom lieim, þótt ég kæmi þarna aðeins sem gestur, þá fanst mér yfirbragð fundarins vera mótað al' þessari ósviknu hlýju og nærri því barnslegum áhuga, sein einkennir hræsnislaust og einlægt trúarlíf; og þessi hlýja og eldur áhugans Ijómaði ekki hvað sízt úr augum þeirra, sem ef til vill voru lengst að komnir ofan úr sveitum og afdölum. Þótt þar sé oft kalt og snjóþungt, verða þar síður úti ýms gömul verðmæti og þar á meðal verðmæti trúarlífsins. Og það er einmitt þessi eldur á- hugans og ljómi augnanna, sem ég sakna stundum i andlitum kaupstaðarbúa. Það er slæmt að verða svo mikill heimaborgari að geta ahlrei orðið hrifinn, ypta öxlum yfir öllum hlutum milU himins og jarðar, að báðum meðtöldum. Það komu þarna vitanlega fram óskaplega hjáróma og falskar raddir á fundinum og það úr hinúm ólíklegustu áttum, en þa^ verða ekki endurminningarnar um það, sem fylgdu fundar- mönnum heim. Það mun hafa verið nýr áhugi, ný trú og ný von. Mér fanst ég lesa ])að út úr andlitunum. Úr bréfi frá kennara. Íslenzkar bækur sendar til umsagnar. Ján Magmísson: Björn á Reyðarfelli. Reykjavík 1938. íslenskri alþýðu er bók þessi aufúsugestur, sem bregður ljosi yfir lífskjör hennar, svo að jafnvel þyngsta stríð og stril úti og inni verður vafið fegurðarljóma. Það er eins og farið sé mjúkri, græðandi hendi um sollin sár, og nýr þróttur færist um hverja

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.