Kirkjuritið - 01.04.1945, Blaðsíða 62
180
Árni Sigurðsson:
Apríl-Mai.
líf, andi og sannleikur, næring og svölun andlegu lífi og
þroska. Þegar saga hinnar miklu og ægilegu styrjaldar
1939—1945 verður skráð, mun það koma skýrt í Ijós,
livern þátt liið lifandi orð kristinnar trúar átti i því, að
varðveita fjölda manna, já, jafnvel heilar þjóðir, frá
uppgjöf og örvæntingu.
Nú hiður mannkynið um huggun í sinni lieljarþungu
sorg, og þrótt til að hefja nú nýtt starf og stríð og reisa
á rústum styrjaldarinnar nýjan og betri heim. Þetta
er verkið, sem fyrir liggur. Og nú hefur reynslan ótví-
rætt sýnl, ótviræðar og' átakanlegar en nokkru sinni
fyrr, að sé lögmál Guðs ekki ritað i hjörtu mannanna
hrynur allt í rústir, er þeir liafa byggt. Líkingin um
húsasmiðina tvo, þann liyggna og þann heimska, hefir
með stórfeldum hætti sannazt árin 1939—1945. Það
féll, sem á sandi vai; byggt, og hrun þess var mikið. Eng-
um heilvita manni getur hlandazt hugur um, að nú þarf
meira til endurreisnar en dásamlegar uppgötvanir vís-
indanna og framfarir tækninnar, þótt hvorttveggja sé
ómetanlegt, ef rétt er með farið. Nú dugar ekkert minna
en nýr sáttmáli við Guð, trúlega lialdinn, ný afstaða til
lians, riýr trúnaður til hans lieilaga vilja.
V.
Kristnir menn á Islandi! Biðjum Guð að gjöra oss hæf
lil að vera „þjónar nýs sáttmála, ekki bókstafs, heldur
anda“, eins og postulinn kemst að orði (2. Kor. 3,6).
Biðjum um nýja, sterka trú, nýtt siðgæði, nýjan anda
og kraft, er skapar nýja menn, frjálshuga, glaða, þrótt-
mikla kristna menn, er kunna tök á verkefnum lífsins,
kunna að beita tækjum þekkingarinnar í þjónustu krist-
innar trúar og hugsjóna, svo að þessi heimur verði sælh
og lifið hér að öllu samhoðnara þeim almáttuga skap-
ara og algóða föður, sem leggja vill lögmál sitl hörnum
sínum í brjóst, svo. að líf þeirra verði fagurt og farsælt,
meinin læknist og tárin þorni.