Kirkjuritið - 01.04.1945, Qupperneq 69
Kirkjuritið. Hinii’ 3 inestu menn mannkynss.
187
æðsta sætið. Hinir rómversku söguritarar gengu algerlega fram
hjá Kristi. Hann liafði engin áhrif á söguritun þess tíma. Samt
sem áður fer það svo, að eftir meira en 1900 ár sér söguritari,
eins og ég, sem kalla mig jafnvel ekki kristinn, lieimsmynd
mannkynssögunar snúast ónfótmælanlega um líf og persónuleik
þessa allra mesta mikilmennis.
Vér verðum enn varir þess áhrifavalds, er kom mönnum, sem
höfðu séð liann aðeins einu sinni, til l)ess að yfirgefa atvinnu
sína og fylgja honum. Hann fyllti liugi þeirra og sálir elsku og
áræði. Hann talaði af slíkri þekkingu og með slíkum myndug-
leik, að lærðum mönnum og vitringum var það hin mesta ráð-
gáta. En þetta hafa einnig aðrir fræðarar gert. Þessir hæfileikar
hefðu ekki gefið honum þann varanlega valdasess, sem honum
hefir hlotnazt; það tignarsæti liefir hann hlotið fyrir þá ein-
löldu, djúpu og nýju hugsun, sem hann vakti um hið liiminháa
mikilvægi einstaklingsins fyrir guðsfaðerni mannsins, og kenn-
inguna um guðsriki.
Þetta er einhver hin víðtækasta umhverfing á sjónarmiðum,
sem noklcru sinni hefir verið kveikt í hugum manna og hreytt
liugsunarhætti þeirra. Það má jafnvel segja, að enginn kynslóð
hafi enn skilið til fulls hina geysilega miklu kröfu, sem hún gerir
til hinna viðurkenndu kerfa og kúgunarvalda mannkynsins.
Kn heimurinn tók að verða allt annar heimur frá þeim tíma,
er kenning þessi var l'lutt, og hvert einasta spor í áttina til meiri
skilnings, umburðarlyndis og góðvilja manna á meðal er spor
1 áttina til þess alheims bræðralags, sem Kristur boðaði“.
Athugasemd þýðandans: Þessi heimsfrægi rithöfundur og
söguritari telur Krist mestan allra, er lifað hafa á meðal manna.
Buddha er næstur lijá horium á listanum, og hinn þriðji er
Aristóteles, og færir H. G. Wells nokkur rök fyrir þeirri skoðun
sinni. — Ritgerð þessi birtist í blaði því, er Dr. Stanley Jones
td-dur út og heitir „The Fellowship of the friends of Jesus“.
Pétuv Sigurðsson.