Kirkjuritið - 01.09.1948, Blaðsíða 49
PRESTASTEFNAN 1948
223
Á þessu sýnódusári hefir allmikið verið unnið að byggingum
nýrra prestsseturshúsa og aðgerðum á eldri prestssetrum,
þrátt fyrir ýmsa örðugleika á útvegun efnis o. fl., er valdið
hefir nokkrum töfum. Smíði húsanna að Miklabæ, Hálsi, Barði
og Breiðabólsstað í Fljótshlíð er nú að mestu lokið, og nú eru
í smíðum prestsseturshús að Desjarmýri og þrjú í Reykjavík.
Ennfremur mun nú vera að hefjast bygging prestsseturshúss
á Reykhólum og Djúpavogi.
Þá vil ég geta þess, að á árinu fór fram kosning í Kirkjuráð,
og voru atkvæði talin hinn 4. desember s. 1. Af hálfu prestanna
voru kjörnir Ásmundur Guðmundsson með 58 atkvæðum og
séra Þorgrímur V. Sigurðsson með 30 atkvæðum, en fulltrúar
kjömir af félagsfundum voru þeir Vilhjálmur Þór forstjóri,
er hlaut 74 atkvæði úr 14 prófastsdæmum, og Matthías Þórðar-
son f. þjóðminjavörður, er hlaut 71 atkvæði úr 10 prófasts-
dæmum.
Á síðustu prestastefnu greði ég allýtarlega grein fyrir lögum
um skipulag og hýsingu prestssetra, sem þá voru nýlega af-
greidd frá Alþingi. í sambandi við framkvæmd þeirra hefir
farið fram athugun og endurskoðun á heimatekjum prestanna,
er hefir leitt það í ljós, að nokkrir prestar hafa á undanförn-
um árum goldið í ríkissjóð nokkru hærri upphæðir í heima-
tekjum en þeim raunvemlega bar, en aðrir ekki krafðir um
fulla greiðslu og skulda því ríkinu nokkrar upphæðir. Ég hefi
von um, að frá þessu uppgjöri verði endanlega gengið í næsta
mánuði. En þeim prestum, sem hafa áhuga á að kynna sér
þetta, að því er þá snertir persónulega, vildi ég ráða til að
leita um það upplýsinga í skrifstofu minni. í sambandi við þessi
lög vil ég ennfremur geta um það, að skipuð hefir verið þriggja
manna nefnd, skipulagsnefnd prestssetra, til þess að athuga
prestssetur landsins og gera tillögur um bæði staðsetningu
bygginga þar og eins um hitt, hvort hentugt myndi að skifta
prestssetrum í fleiri býli, að leggja niður prestssetur eða
taka upp ný.
í nefndinni eiga sæti Gústav A. Jónasson, skrifstofustjóri
í Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, séra Sveinn Víkingur, skrif-
stofustjóri biskups, og Pálmi Einarsson, landnámsstjóri.