Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 14

Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 14
180 KIRKJURITIÐ Mestur kostnaður við skólann yrði sá að sjá honum fyrir nægum kennslukröftum. Ég gjöri ekki ráð fyrir borgun til vígslubiskupsins fyrir starfa hans að kennslu og skólastjórn, en aðra kennslu yrði að greiða að meira eða minna leyti. Og yrði það að vera aðalframlag þjóð- kirkjunnar til skólans. Síðastliðið haust átti ég tal við gamla skólastjórann frá Sigtúnum, Manfred Björkquist, núverandi Stokkhólms- biskup, um endurreisn Skálholts og kristilegan æskulýðs- skóla þar. Hann á brennandi áhuga á því máli. Og það munar vissulega um hanri, þar sem hann leggst á sveif- Ef prestastétt Islands bindist nú einhuga samtökum um það að reisa kirkjulegan skóla í Skálholti og hefja þann- ig staðinn til þess vegs, sem honum ber og þjóðarheill býður, þá megum við treysta mikilsverðri aðstoð þessa ágæta skólamanns og kirkjuhöfðingja, sem mun vera með mestu áhrifamönnum sinnar þjóðar. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessa framsöguræðu lengri, en vil þó aðeins drepa á eitt enn að lokum. Sam- eining prestastéttarinnar hefir ekki verið jafnmikil sem skyldi undanfarin ár. Ég hygg, að okkur sé það mjög hollt, ef við eignumst nú tvö baráttumál, sem við sam- einumst allir um til sigurs: Annað er verndun starfs- krafta kirkjunnar gegn löggjöf síðasta Alþingis. Hitt er kristilegur og kirkjulegur skóli, er rísi í Skálholti.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.