Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 15
Aðalfundur Prestafélags íslands.
Aðalfundur Prestafélags íslands á þessu ári
^Pphaf fundar. var haldinn 19. júní, og sóttu hann 50—60
andlegrar stéttar menn.
Fyrst voru haldnar morgunbænir í kapellu Háskólans, og
flytti þar ræðu elzti prestur þjónandi presta á íslandi, séra
Jónmundur Halldórsson. Lagði hann höfuðáherzlu á það, að
allir prestar efldu með sér samhug og bróðurlegt starf. Sálm-
Ur var sunginn á undan og eftir.
Að þessari guðsþjónustu lokinni gengu fundarmenn í hátíða-
sal Háskólans. Þar setti formaður félagsins, Ásmundur Guð-
^undsson, prófessor, fundinn og tilnefndi þá fundarritara Bjöm
V_agnússon prófessor, séra Hermann Gunnarsson og séra Krist-
^au Róbertsson.
Formaður flutti ávarp. Hann minntist auk
Ávarp annars á það, að nú léti dr. Bjami Jónsson
f°rmanns. vígslubiskup af prestsembætti efir 41 árs
starf, sem hann hefði unnið af þeirri alúð og
atorku, að frábært væri og til fyrirmyndar. Vottaði hann séra
^jarna þakkir prestastéttarinnar og samfögnuð yfir starfi hans
°S þeirri virðingu og vinsældum, sem honum hefði hlotnazt að
Verðleikum, og bað Guð að blessa ávöxt verka hans, eins og
allra þeirra, er unnið hefðu vel og trúlega. Hvatti hann fund-
armenn til þess að vera bjartsýna og lífsglaða, því að með
öðrum hætti yrði ekki boðað fagnaðarerindi Jesú Krists. Meðal
annars komst hann svo að orði:
»í guðspjöllunum getum við enn fundið djúpan og heitan
f°gnuð Jesú Krists. Orð hans eru nefnd gleðiboðskapur. Hon-
er yndi að því að skoða blóm vallarins og fuglana sveifla
sfr léttum vængjum í loftinu. Hann sér Guðs ríki koma —
riki kærleikans, og þekkir gleði himinsins yfir syndugum, sem
®tlr ráð sitt. Hann faðmar að sér bömin, fullviss þess, að