Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 21

Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 21
PRESTASTEFNAN 1951 187 ]ndómurinn. Fyrir hann getur sá gróður vaxið í brjóst- vorum, sem gjörir oss sterka, sanna, frjálsa. Vér erum komnir á prestastefnu. Þá samkomu, sem fer með mál kirkju og kristindóms í þessu landi. Kirkjan er sú stofnun, sem varðveitt hefir um aldir dýrustu eign- ina. Yður hefir verið falið heilagt hlutverk. Þér eruð vökumenn og sáðmenn. Og nú er þér komið hingað til þnss að ræða og íhuga þau mál, sem Islendinga varðar mestu, þá býð ég yður hjartanlega velkomna. Ég vona, að för yðar til þessa fundar verði giftuför, giftuför fyrir yður sjálfa, söfnuði yðar, kirkjuna og þjóðina í heild. % vil óska þess, að hún mætti verða til þess að auðga Þjóð vora að þeim verðmætum, sem eru undirstaða að lifi hennar og frelsi — gjöra kirkjuna að því bjargi, sem ^ygging íslenzks þjóðlífs verður að hvíla á í stormum og hamslausum átökum stórveldanna um yfirráðin yfir þjóð- Urn- heims. Sennilega hafa leiðtogar kirkjunnar víðsvegar um heim- mn aldrei verið jafn sammála og nú um það, að kristin irkja þurfi að vera samhuga og samstillt í starfi. Þér ^tið, bræður mínir, að mér hefir verið eining íslenzku mrkjunnar hjartans mál, þótt mér hafi ekki tekizt að °ma því til vegar, sem ég óskaði í þeim efnum. Sagan efir leitt í ljós, að sundrungarmennimir innan kristinnar mrkju, hvar sem er í heiminum, voru óheillamenn þegar Þe|r voru að tendra eld trúmálabaráttunnar. Ég hefi ekki skilið það fullkomlega fyrr en s.l. vetur, er ég dvaldi um Vlð í Bandáríkjunum og Canada, hversu sterk einingar- Vlðleitni er innan fjölda kirkjudeilda þar og mér þykir V0ent um að geta sagt yður frá því, að evangelisk-lút- erska kirkjan vestra (the United Lutheran Churches of merica) og hinn ágæti forseti hennar, Dr. Franklin Fry, eru a meðal þeirra, sem þar eru í fararbroddi. Eg vil enn benda á það, að styrkleiki og áhrif þjóð- ... iu Islands eru mjög undir því komin, að vér getum ltxð a skoðanamuninn með umburðarlyndi og í kærleika

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.