Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 24
190
KIRKJURITIÐ
söfnuði. En um þessi mál ræðum vér hér á prestastefn-
unni og er gott að fá til þess tækifæri.
Við komu yðar, kæru vinir, til höfuðstaðar lands vors
á sumrin, til prestastefnu, fær Reykjavík nýjan svip. Þér
eruð fulltrúar eigi aðeins kirkjunnar, heldur einnig fólks-
ins í dreifbýlinu og kaupstöðum og kauptúnum landsins.
Þér þekkið baráttu þess, hugðarefni þess og þrár. Vér
eigum þennan samfund til þess að ræða um starfsleiðir
til þess að stuðla að heill og hamingju þeirra, sem þér
eruð fulltrúar fyrir og þjóðarinnar í heild. Þjóðin þarf
öll að vera samhuga og samstillt, eins og vér, á alvöru-
og hættutímum. Hún þarf að koma með oss upp í helgi-
dómana. Þar, frammi fyrir augliti Guðs, leysist sérhver
vandi. Hann er sá, sem aldrei bregzt. Bjargið, sem allt-
af er óhætt að byggja á. 1 hans skjóli er gott að lifa
og starfa. 1 hans skjóli er kirkja hans sterk í stormi.
Ég vil í nafni prestastefnunnar flytja öllum söfnuðurn
landsins og starfsbræðrum vorum, sem heima eru, kveðj-
ur vor allra, sem til prestastefnu eru komnir, og óska
yður öllum í bæ og byggð blessunar Guðs.
Lifið öll heil í skjóli hans, studd hendi hans í starfi
og stríði.
Yfirlitsskýrsla biskups.
Þá vil ég, samkvæmt venju, gera grein fyrir störfum
hag kirkjunnar á liðnu sýnódusári.
Er þá fyrst að geta þeirra breytinga, er orðið hafa á starfs-
liði kirkjunnar á þessu tímabili.
Enginn þjónandi prestur lézt á árinu. Hins vegar eigum vér
á bak að sjá tveim mætum stéttarbræðrum úr hópi fyrrver-
andi presta, en það eru þeir séra Hermann Hjartarson fyrr'
um prestur í Mývatnsþingum og síðar skólastjóri að Laugum
í Reykjadal, og séra Einar Pálsson, fyrrum prestur í Reykholti-
Séra Hermann Hjartarson andaðist í Reykjavík hinn 12-
september s.l. Hann var fæddur að Flautafelli í Þistilfirðl
22. marz 1887, sonur Hjartar hreppstjóra Þorkelssonar og
konu hans Ingunnar Jónsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1