Kirkjuritið - 01.09.1951, Blaðsíða 29
PRESTASTEFNAN 1951
195
Prestakall, 4. Staðarhraunsprestakall, 5. Staðarhólsþing, 6.
^afnseyrarprestakall, 7. Staðarprestakall í Aðalvík, 8. Trölla-
tunguprestakall, 9. Breiðabólstaðarprestakall á Skógarströnd,
lO. Auðkúluprestakall.
Ákvæði þessi koma þó eigi til framkvæmda fyrr en 1. jan.
1952. Jafnframt mæla lögin svo fyrir, að endurskoða skuli
leggjöfina um prestakallaskipun landsins og ljúka þeirri end-
hrskoðun svo snemma, að frumvarp um heildarskipun presta-
kalla verði lagt fyrir Alþingi á næsta hausti. Skal við þá
endurskoðun hafa náið samband við biskupinn yfir íslandi,
Kirkjuráð, Prestafélag íslands og prestastefnu.
Kirkjumálaráðuneytið hefir samkvæmt þessu skipað sjö
^nanna nefnd til þess að athuga og gera tillögur um presta-
kallaskipunina. Nefndina skipa: Séra Sveinbjöm Högnason pró-
fastur, formaður, Ásmundur Guðmundsson prófessor, Ingimar
Jónsson skólastjóri, Páll Zóphóníasson búnaðarmálastjóri,
^álmi Einarsson landnámsstjóri, Sigurður Bjamason alþingis-
ttiaður og Sveinn Víkingur biskupsritari, sem er skrifari nefnd-
arinnar.
Nefndin hefir þegar haldið allmarga fundi og munu þeir
Ásmundur Guðmundsson prófessor og séra Sveinbjöm Högna-
s°n gera prestastefnunni grein fyrir störfum nefndarinnar á
aiorgun.
Að öðru leyti tel ég ekki þörf á að skýra þetta mál hér
Uu> þar sem framsögumenn þeir, er ég áður nefndi, munu
rækilega reifa það fyrir prestastefnunni.
Lítið hefir verið um kirkjubyggingar á sýnódusárinu. Veld-
Ur þar þó ekki um áhugaleysi safnaðanna, heldur annars veg-
ar sívaxandi dýrtíð og örðugleikar á útvegun byggingarefnis,
611 hins vegar synjanir fjárhagsráðs um fjárfestingarleyfi til
uýrra kirkjubygginga. Mundi bygging ýmsra kirkna þegar
hafa verið hafin, þrátt fyrir dýrtíðina, ef fjárhagsráð hefði
eigi stöðvað framkvæmdir. Verður ekki við það unað til lang-
|rama, að kirkjubyggingarþörf safnaðanna verði þannig heft
ar eftir ár, og tel ég rétt og nauðsynlegt, að Prestastefnan
lati koma fram álit sitt á þessum málum.
Hins vegar hafa á sýnódusárinu farið fram allmiklar við-
Serðir á eldri kirkjum og má þar einkum nefna: Leirárkirkju