Kirkjuritið - 01.09.1951, Qupperneq 34
200
KIRKJURITIÐ
til minningar um Jón Arason, hinn ástsæla biskup þeirra. Há-
tiðina sótti biskup landsins, vígslubiskupar beggja hinna fornu
biskupsdæma og fjöldi presta víðsvegar að af landinu. Fyrir
hönd ríkisstjómarinnar mætti forsætisráðherra og utanríkis-
málaráðherra, en kirkjumálaráðherra var þá erlendis. Las f°r'
sætisráðherra bréf kirkjumálaráðherra til biskups, þar sem
ákveðið er að flytja prestssetrið heim að Hólum svo fljótt
sem því verður við komið.
4. Aðalfundur Prestafélagsins var haldinn í Reykjavík að
venju og er honum nýlokið. Einnig héldu hinar ýmsu deildir
Prestafélagsins hina árlegu fundi sína á síðastliðnu sumri.
Kirkjumót voru háð, meðal annars í Rangárvallaprófastsdæmi
og Snæfellsnessprófastsdæmi. Og K.F.U.M. hafði mót í Vatna-
skógi.
Af kirkjuþingum erlendis, þar sem íslenzka kirkjan átti fuU'
trúa, vil ég nefna:
1. Stjórnarfundur Kirknasambands Norðurlanda, er haldinn
var í Sigtúnum í Svíþjóð dagana 16. og 17. október s.l., Þar
sem íslenzka kirkjan gerðist formlega aðili sambandsins. En
um þátttöku íslenzku kirkjunnar í þessu sambandi var aJl-
mikið rætt í sambandi við heimsókn kirkjufulltrúanna fra
Norðurlöndum undir forystu Björkquists Stokkhólmsbiskups
vorið 1950. Fyrir hönd kirkjunnar mætti á fundi þessum Ás-
mundur Guðmundsson prófessor.
2. Kirkjufundur í Osló, er haldinn var í vetur til fram-
haldsumræðna um nánara samstarf milli anglikönsku kirkj-
unnar og Norðurlandakirknanna, en fundur um þetta efm
hafði áður verið haldinn í Chichester í Englandi 1947. Af
hálfu kirkjunnar hér mætti á fundinum séra Jakob Jónssom
3. Mót frjálslyndra guðfræðinga í Lundi í Svíþjóð dagmm
20.—25. júlí, og mætti þar af íslands hálfu séra Bjöm Magn'
ússon prófessor.
I þessu sambandi þykir mér rétt að skýra frá því, að is'
lenzka kirkjan hefir á þessu ári verið formlega viðurkenndur
aðili að Heimssambandi lútherskra kirkna (The Lutheran
World Federation). Eins og þér munið sóttum við Ásmundur
Guðmundsson prófessor Allsherjarþing lútherskra kirkna
Lundi vorið 1947, fyrir hönd þjóðkirkjunnar, og undirritaði
ég þar fyrir hönd kirkjunnar stofnskrá Heimssambands luu1'