Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Side 37

Kirkjuritið - 01.09.1951, Side 37
PRESTASTEFNAN 1951 203 Einn þessara ungu manna, Bjöm H. Jónsson, hefir í hyggju taka við setningu í Árnessprestakalli á Ströndum, en þar hefir verið prestslaust um skeið; mun ég væntanlega vígja hann hinn 8. júlí n.k. Á síðustu árum hefir mjög fjölgað nemendum í guðfræði- deildinni, þannig að nú má vænta þess, að á næstu árum verði verulega ráðin bót á þeirri prestafæð, sem undanfarið hefir mjög háð kirkjunni í starfi hennar. En jafnframt verður þá einnig að vinna að því af fremsta megni að fá verulega bætt- an húsakost á prestssetrunum, því mörg prestssetranna eru nú svo illa hýst, að vonlítið eða vonlaust er að þangað fáist Prestur, ef ekki verður úr bætt. Vænti ég í þeim málum stuðn- ings yðar allra, því hér er vissulega sameiginlegra átaka þörf. Skýrslu minni er lokið. Hún segir fátt eitt af því, sem starf- að var, og mörgu sleppt, sem ástæða hefði verið að geta um. Nýtt starfsár hefst. Gefi Guð að það verði dáðríkt ár og bless- Unarríkt fyrir þjóð vora og kirkju. Fundir voru síðan haldnir í hátíðasal Háskólans. Aðalmál prestastefnunnar. Aðalmál prestastefnunnar var prestakallaskipun landsins, og höfðu þeir framsögu Ásmundur Guðmundsson prófessor og Sara Sveinn Víkingur, en þeir eru báðir í skipulagsnefnd presta- halla. Þeir skýrðu nokkuð frá störfum nefndarinnar og stefnu S1nni í þessu máli. Að loknum erindum þeirra fóru fram um- r®ður og nefndarkosning. Bar nefndin síðar fram tillögur sínar. Að lokum voru samþykktar þessar ályktanir í málinu: 1- Prestastefna íslands telur óráðlegt og óæskilegt, bæði fyrir ríki og kirkju, að prestakallaskipun landsins sé gjör- reytt, nema áður sé leitað rökstudds álits forráðamanna kirkj- ^nnar og sanngjamt tillit tekið til óska viðkomandi safnaða. 1Un telur, að hin nýju lög um prestakallaskipunina séu svo liia undirbúin, að þau megi ekki koma til framkvæmda. Hún teiur, að forn hefð um að viðkomandi söfnuðir ráði að mestu s°knarskiptingu innan einstakra prestakalla eigi að ríkja framvegis. Jafnframt lýsir prestastefnan yfir því, að hún er andvíg ®kkun presta í landinu frá því sem nú er, enda slík fækkun

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.