Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 40
206
KIRKJURITIÐ
landsins eru svo illa hýst, að engin von er, að þangað fáist
prestur, meðan svo stendur, enda mörg þeirra þegar verið
prestslaus árum saman af þessum sökum.
Siðgæði og þjóðleg menning. Með tilliti til dvalar erlends
herliðs í landinu og þeirra cilvarlegu tíma, sem fram undan
eru, beinir Prestastefna íslands 1951 þeirri áskorun til for-
eldra, kennara og alls almennings, að standa trúlega á verði
um móðurmálið og önnur þjóðleg verðmæti og efla hverja þá
starfsemi og uppeldisráðstafanir, sem stuðla mega að heil-
brigðu félagslífi og kristilegu siðgæði.
Altarissakramentið. Prestastefnan beinir þeim tilmælum til
forráðamanna allra kirkjulegra málgagna í landinu, að þau
verði samtaka um það, nú þegar á þessu ári, að rita ræki-
lega um altarissakramentið og hvetja almenning til þess að
rækja það betur en verið hefir
Morgunbænir. Biskupi falið að ræða um það við útvarps-
ráð, að útvarpað verði morgunbænum daglega, um leið og
morgundagskrá útvarpsins hefst.
Fyrirlestrar.
Tvö erindi voru flutt í Dómkirkjunni. Séra Guðmundur
Sveinsson á Hvanneyi'i flutti hið fyrra, um spámenn Gamla-
testamentisins, en séra Jakob Jónsson hið síðara, um samband
anglíkönsku kirkjunnar og systurkirknanna á Norðurlöndum-
Ferð til Strandarkirkju.
Annan dag prestastefnunnar fóru prestar í boði biskups til
Strandarkirkju og áttu þar hátíðlega stund. Sóknarpresturinn
séra Helgi Sveinsson rakti í höfuðdráttum sögu kirkjunnar
og séra Árelíus Níelsson bað bænar. Einnig voru sálmar
sungnir.
Á eftir var farið að Selfossi og neytt þar kvöldverðar í
boði Reykjavíkurbæjar.
Gestir á prestastefnunni.
Þrír erlendir prestar voru gestir á prestastefnunni. En þeir
voru Horst Schubrig prófastur frá Þýzkalandi og Moos pró-
fastur og Ulsdal prestur frá Danmörku. Þeir fluttu kveðjur
frá kirkjum landa sinna.