Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 50
216
KIRKJURITIÐ
7. gr.
Biskup ræður tvo presta, aðstoðarpresta, til þess að gegna
þjónustu í forföllum sóknarpresta um stundarsakir og til ann-
arra starfa í þjónustu kirkjunnar, þar sem hann telur mesta
þörf hverju sinni. Prestar þessir skulu hafa sömu laun og sókn-
arprestar, en ferðakostnaður greiðist þeim samkvæmt reikn-
ingi, er kirkjustjómin úrskurðar.
8. gr.
Andvirði prestssetra þeirra, sem lögð verða niður samkvæmt
lögum þessum, skal verja til húsbygginga og annarra endur-
bóta á prestssetrum í viðkomandi prestaköllum.
9. gr.
Nú vilja menn breyta skipun sókna eða takmörkun presta-
kalla, leggja niður kirkju eða færa úr stað eða taka upp nýía
kirkju, þar sem ákvæði 2. og 3. greinar eiga ekki við og skal
það mál koma fyrir safnaðarfund, eða safnaðarfundi, ef flein
en einn söfnuður eiga í hlut. Ef breytingin viðkemur aðeins
einum söfnuði, ræður meiri hluti atkvæða á lögmætum safn-
aðarfundi. Séu söfnuðir tveir, ræður meiri hluti atkvæða á báð-
um fundum. Séu söfnuðir fleiri en tveir, ræður meiri hluti
safnaðarfunda. Samþykki síðan héraðsfundur (eða héraðs-
fundir, ef breytingin nær til fleiri en eins prófastsdæmis) til'
lögumar, er kirkjustjóm rétt að staðfesta breytingamar.
10. gr.
Nú er við breytingar þær, sem um ræðir í 7. gr., aðeins urn
tilfærslu gjaldenda milli sókna að ræða, og kirkjur eru í báð-
um sóknum, og skal þá sóknarkirkja sú, er nýja gjaldendur
fær við sóknarbreytinguna, gjalda kirkju þeirrar sóknar, eJ
gjaldendur missir, sem svarar 3ja ára lögboðnu sóknargjaW1
fyrir hvem gjaldanda. Upphæðin greiðist með jöfnum afborg'
unum á næstu 5 ámm, en án vaxta.
Nú er sókn skipt og tekin upp ný sókn, og kirkjubygg^
hafin, og skal þá kirkjumálaráðherra í samráði við biskup
skipa þrjá menn til þess að meta skuldlausar eignir sóknar-
kirkjunnar. Er kirkjunni síðan skylt að greiða vaxtalaust og
með jöfnum afborgunum á næstu 5 ámm þann hluta eignanna,
er hinni nýju sókn ber að tiltölu réttri við tölu gjaldenu
í báðum sóknum, þegar skiptin fara fram, að frádregnu
ára sóknargjaldi þeirra gjaldenda, er kirkjan missir við skip
inguna.